
Eiginkona aðgerðarsinnans Mahmoud Khalil í Columbia-háskólanum, hefur nú stigið fram og tjáð sig en eiginmaðurinn, sem hélt ræðu í mótmælum til stuðnings Palestínu í háskólanum, er nú í haldi bandaríska heimavarnarráðuneytisins.
„Hann er ótrúleg manneskja sem þykir svo vænt um annað fólk,“ sagði eiginkona hans Noor Abdalla við Reuters-fréttastofuna. „Hann er hin ljúfasta, einlægasta sál“.
Á miðvikudag héldu lögfræðingar Khalils því fram við alríkisdómara að hann hefði verið handtekinn í hefndarskyni fyrir einarðlega baráttu sína gegn stríði Ísraels á Gaza. Dómarinn framlengdi skipun sína um að koma í veg fyrir brottvísun Khalils á meðan hann íhugar hvort handtakan hafi verið í samræmi við stjórnarskrá.
Hjónin eiga von á sínu fyrsta barni í lok apríl. Hún segist vona að Khalil yrði laus þá.
„Ég held að það væri mjög hrikalegt fyrir mig og fyrir hann að hitta sitt fyrsta barn á bak við glerskjá,“ sagði Abdalla. „Ég hef alltaf verið svo spennt að eignast mitt fyrsta barn með manneskjunni sem ég elska.“
Handtaka Khalils er ein af fyrstu tilraunum Trump Bandaríkjaforseta til að uppfylla loforð sitt um að krefjast brottvísunar erlendra námsmanna sem taka þátt í mótmælahreyfingunni sem er hliðholl Palestínu.
Komment