
Þrír gistu fangaklefa í dag34 mál voru bókuð hjá lögreglunni.
Mynd: Stundin/Kristinn
Í dagbók lögreglu frá því dag er greint frá því að ráðist hafi verið á einstakling í dag og hann hafi verið rændur. Árásarmaðurinn var í kjölfarið handtekinn og fórnarlambið sent á sjúkrahús til aðhlynningar.
Lögreglan greindi einnig frá annarri líkamsárás en gaf ekki upp meiri upplýsingar um málið.
Tilkynnt var um mann í geðrofi í miðbæ Reykjarvíkur og hann var fluttur á geðdeild af lögreglu. Þá var ökumaður handtekinn fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja og olli umferðaróhappi. Hann var vistaður í fangaklefa þar til hann er færður í skýrslutöku.
Lögreglan fékk tilkynningu um innbrot í leikskóla og fór á vettvang til að rannsaka málið.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment