1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

7
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

8
Minning

Megas er látinn

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

Til baka

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg

„Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég“

Birta Blanco
Birta BlancoBirtu sárvantar íbúð
Mynd: Aðsend

Birta Blanco, einstæð móðir í Reykjavík, segir stöðu sína dæmi um alvarlegt húsnæðisóöryggi sem bitni sérstaklega á einstæðum foreldrum með heilsuvanda og börn með sérþarfir. Hún lýsir margra mánaða óvissu, vonbrigðum og skorti á svörum frá kerfinu, eftir að hún missti húsnæði sitt og hafnaði í bið eftir félagslegri íbúð sem hún taldi sig hafa verið lofaða.

Birta er þriggja barna móðir, með tvö barna sinna í sinni umsjá en hún hefur verið flogaveik frá fimm ára aldri.

„Er þriggja barna móðir með tvö þeirra í umsjá. 10 ára og tveggja ára. Er flogaveik sem gerist undir miklu álagi og streitu. Er í greiningarferli við POTS líka. Elsta barn er í greiningarferli við ADHD og einhverfu,“ segir Birta í samtali við Mannlíf fyrir síðustu helgi.

Hún segir að staða hennar hafi legið fyrir í langan tíma.

„Já þetta hefur verið vitað síðan í september í fyrra, ef ekki fyrr. Er sem sagt í endurhæfingu og með ráðgjafa þar sem vissi að ég væri að fara missa húsnæðið þar sem leigusalinn minn þurfti að flytja inn vegna óviðráðanlegra aðstæðna.“

Birta hóf strax leit að nýju húsnæði.

„Ég byrjaði strax að leita á almennum leigumarkaði og var á lista yfir félagslegu húsnæði. Ég fékk að skoða tvær íbúðir á almenna.“

Í kjölfarið frétti hún af sértæku félagslegu úrræði fyrir einstæðar mæður.

„Frétti svo af Ellunni sem er félagslegt húsnæði fyrir einstæðar mæður og aðra með sérþarfir. Þar eru ráðgjafar.“

Hún segir að hún hafi, í samráði við ráðgjafa sinn, lagt áherslu á það úrræði til að auka líkur sínar.

„Ég bað ráðgjafann minn um að huga að íbúðum þar fyrir mig líka til að auka líkurnar mínar á félagslegri íbúð.“

Birta segist hafa fengið samþykki fyrir íbúð á almennum leigumarkaði, en ákveðið að hafna henni eftir fund með ráðgjöfum í Ellunni.

„Svo fékk ég mig samþykkta fyrir einni íbúðinni á almenna leigumarkaðinum og svo var eitthvað spjall um tryggingu sem ég þurfti að spyrja ráðgjafann minn um en þá er ég boðuð á fund með ráðgjöfum í Ellunni og þar mér gefnar miklar vonir um að fá íbúð þar, þar sem þær sögðu mér á þessum fundi í nóvember að það væri að losna íbúð í byrjun desember.“

Hún segir ákvörðunina hafa verið tekin í trausti á félagslega kerfinu.

„Vegna þessa þá hætti ég við að taka íbúðinni á almenna markaðinum þar sem Féló er öruggara en leigumarkaðurinn og byrjaði þá biðin fyrir íbúðinni í Ellunni.“

Birta lýsir síðan löngu tímabili óvissu og sífelldra frestana.

„Ég á mörg e-mail á milli mín og ráðgjafa míns um að ég fengi hana og spyr ég mikið hver staðan er og alltaf lengdist biðtíminn þar sem það þurfti að standsetja og laga íbúðina.“

Þrátt fyrir að íbúðin hafi losnað í desember hafi hún aldrei fengið afdráttarlaust svar.

„Íbúðin losnar í byrjun desember og þurfti ég að flytja út í byrjun janúar. Nú situr allt innbúið í geymslu síðan þá og hef ég ekki fengið nein svör um þessa íbúð. Bara að hún er í vinnslu.“

Í byrjun síðustu viku segir hún að henni hafi verið gert ljóst að engar tryggingar væru í raun fyrir úthlutuninni

„Svo í byrjun þessara viku fæ ég að vita að það eru svo ekkert 100% að ég fái þessa íbúð úthlutaða … Það er víst bara hægt að „mæla með mér“ á úthlutunar fundum 1x í viku.“

Birta segist hafa leitað allra hugsanlegra leiða til að fá aðstoð.

„Ég er búin að senda email á alla og ömmu þeirra sem tengjast Reykjavíkurborg, búa til könnun um húsnæðisóöryggi, skoða allt um húsnæði fyrir heimilislaust fólk en finn bara fyrir fíkla og fólk í ofbeldissambandi, senda á Rúv, Vísi og aðra fréttamiðla til að fá einhverja umfjöllun, alla stjórnmálaflokka og búin að senda inn kvörtun til Gæða- og eftirtirlitsstofnunar velferðamála og heyra í húsnæðisfulltrúa Austurmiðstöðvar og benda forseta Íslands á stöðu mála.“

Að hennar sögn er staða hennar ekki einsdæmi.

„Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég og láta sig bara hafa það af því þær halda að Reykjavíkurborg/féló hafa þeirra hagsmuni í huga. Raunin er bara allt önnur.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu