
Breskri konu, sem rænt var í Malaví fyrr í þessum mánuði, hefur verið bjargað úr haldi eftir skotbardaga milli lögreglu og meintra mannræningja. Tveir grunaðir menn létust í aðgerðinni og háttsettur lögreglumaður særðist.
Konan, sem heitir Osman, er tveggja barna móðir og starfar að sögn fyrir endurskoðunarfyrirtæki í Malaví. Henni var rænt um hádegisbil 11. september í borginni Blantyre í suðurhluta landsins. Breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hún sé upprunalega frá Leicester á Englandi.
Lögreglan í Malaví greindi upphaflega frá því á fimmtudag að fjórir grunaðir menn hefðu fallið í aðgerðinni. Richard Luhanga, ríkislögreglustjóri Malaví, leiðrétti þær upplýsingar hins vegar á föstudag og sagði tvo hafa látist. Engin skýring hefur verið gefin á misræminu. Lögregla leitar enn tveggja annarra grunaðra.
Að sögn lögreglu voru mennirnir vopnaðir AK-47 árásarriffli og skammbyssu þegar til skotbardaga kom. Háttsettur lögreglumaður særðist í átökunum og var fluttur á sjúkrahús. Ástand hans er sagt stöðugt.
Eftir mannránið hafði lögregla lýst eftir fjórum mönnum sem taldir voru hafa notað gráa bifreið til að ræna Osman.
Yfirvöld höfðu jafnframt heitið um 17 þúsund Bandaríkjadölum í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiddu til þess að Osman yrði bjargað og mannræningjarnir handteknir og sakfelldir.
Ekki hefur verið upplýst um ástæður mannránsins og lögregla heldur rannsókn málsins áfram.
