1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

7
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

8
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

9
Minning

Megas er látinn

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

„Það er ekki gott að lenda í klónum á henni“

Friðrik Már Heimisson reyndi að vara við aðstæðum í Bakkakoti

Þóra í Bakkakoti
Þóra BernódusdóttirÞóra er borin þungum ásökunum í Kveiksþættinum
Mynd: Facebook

Í RÚV var í gær sýndur Kveiksþáttur þar sem rætt var við drengi og eina stúlku sem send voru í fóstur og sumardvöl í Bakkakoti, þar sem ofbeldi af hálfu húsfreyjunnar Þóru Bernódusdóttur og drykkja er sögð hafa viðgengist. Er um að ræða framhald af þeirri umfjöllun sem Kveikur fjallaði um fyrir nokkrum vikum. Í þætti gærkvöldsins kom meðal annars fram frásögn Friðriks Más Heimissonar, sem reyndi að segja frá aðstæðum sínum þegar hann var barn.

Friðrik fór fyrst í sumardvöl í Bakkakot árið 1999, þá 12 ára gamall. Hann var ofvirkur og hafði orðið fyrir einelti í skóla. Móðir hans, Petrea Friðriksdóttir, sótti um að hann fengi að fara í sveit yfir sumarið í þeirri trú að það gæti gert honum gott. Félagsþjónusta Reykjavíkurborg valdi Bakkakot sem staðsetningu.

Samkvæmt gögnum sem Kveikur vitnar í varð starfsfólk félagsþjónustunnar strax fyrsta sumarið vart við að Þóru líkaði illa við Friðrik. Í skýrslu er haft eftir henni að henni fyndist eins og drengurinn hefði verið „plataður inn á hana“.

Í eftirlitsskýrslu sumardvalareftirlits borgarinnar segir orðrétt:

„Þóra átti mjög erfitt með að finna nokkurn hlut sem væri jákvæður við Friðrik“.

Þar kemur einnig fram að hún hafi kallað hann „latan og kjaftforan“. Sömu lýsingar komu aftur fram í eftirlitsskýrslu árið 2001, þar sem Friðrik er sagður „latur og vitgrannur“.

Sumarið 2001 reyndi Friðrik sjálfur að segja frá stöðunni. Samkvæmt skýrslu sagði hann orðrétt:

„það er ekki gott að lenda í klónum á henni“.

Í viðtali við Kveik segir Friðrik að hann hafi verið skíthræddur þegar hann reyndi að koma þessu á framfæri:

„Ég man eftir því að ég ýjaði að þessu þarna, bara skíthræddur,“ segir Friðrik.

„Ég vonaðist til þess að það myndi einhver taka mig þaðan, spyrja mig: „Hvað, af hverju? Af hverju er hann að segja þetta? Hvað hefur hann séð?““

Móðir hans, Petrea, segir að þessi orð hefðu átt að vekja viðbrögð:

„Þetta ætti að hringja bjöllum, af hverju hann noti þarna þessi orð, að það sé slæmt að lenda í klónum á Þóru.“

Í gögnum félagsþjónustu Reykjavíkurborgar kemur fram að Friðrik ræddi aftur við félagsráðgjafa um aðstæður sínar í Bakkakoti haustið 2001. Þá ræddi félagsráðgjafinn einnig við Petreu um neikvæð viðhorf Þóru í garð sonar hennar. Þrátt fyrir það var samningur um að hjónin í Bakkakoti yrðu áfram stuðningsfjölskylda hans framlengdur stuttu síðar.

Friðrik fór þó aðeins í örfá skipti í Bakkakot eftir það. Í febrúar 2002 mætti hann ásamt móður sinni á fund hjá félagsþjónustunni. Nokkrum vikum síðar lýsti félagsráðgjafi því samtali á fundi með kollegum og stjórnendum með eftirfarandi orðum:

„Friðrik kom fram með ásakanir um að á heimili stuðningsfjölskyldu sé drykkja og barsmíðar. Farið var fram á að ekki yrði gætt nafnleyndar varðandi þessar ásakanir og samþykkti móðir það.“

Þrátt fyrir ítrekuð viðvörunarmerki og frásagnir Friðriks hélt starfsemin í Bakkakoti leyft í nokkur ár eftir að ásakanirnar komu fram.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu