
Fimm lögreglubílar lentu í alvarlegum árekstri á hraðbrautinni A1 snemma í morgun, sem endaði með því að fimm manns voru fluttir á sjúkrahús og brakið lá yfir alla akreinina.
Vegakaflinn var lokaður í dag eftir það sem lögregla lýsir sem „fjölbíla árekstri“, sem átti sér stað um klukkan 2:30 aðfaranótt miðvikudags nærri Denton, í Newcastle. Myndir frá vettvangi sýna fjóra skemmda lögreglubíla og einn ómerktan lögreglubíl sem hafnaði á hliðinni. Svartur BMW-bíll sést á vettvangi fyrir framan lögreglubílana og er talið að hann sé ekki í eigu lögreglunnar.
Öll þrjú akreinabilin milli gatnamóta 72 og 75 við Swalwell og Denton eru lokuð, og ökumenn hafa staðið frammi fyrir miklum töfum í morgunumferðinni, þar sem umferðarteppan nær allt aftur að gatnamótum 70.
Lögreglumenn frá Northumbria eru enn á vettvangi og rannsaka slysið, sem talið er að geti tekið dágóðan tíma. Þá sagði bráðaliðaþjónusta Norð-austur Englands að nokkrar sjúkrabíla- og viðbragðssveitir frá HART (Hazardous Area Response Team) hafi verið sendar á vettvang eftir að tilkynning barst snemma í morgun.
Komment