
Fimm karlar voru í gærkvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík.
Árásin átti sér stað aðfaranótt þriðjudags og barst tilkynning um hana til lögreglu um klukkan tvö um nóttina. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ráðist á þrjá einstaklinga.
Fjórir hinna grunuðu voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags en sá fimmti til miðvikudags í næstu viku.
Einn þeirra sem varð fyrir árásinni slasaðist alvarlega og var fluttur á Landspítalann, þar sem hann var lagður inn á gjörgæsludeild. Hinir tveir slösuðust minna. Að sögn lögreglu var árásin lífshættuleg.
Alls voru sjö menn handteknir í tengslum við málið, en tveimur þeirra hefur verið sleppt úr haldi.
Lögregla segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.

Komment