1
Pólitík

Ragna farin í veikindaleyfi frá Alþingi

2
Fólk

Snotur íbúð rokkstjörnu í Fossvogi föl fyrir slikk

3
Innlent

Eldar réðst á mann á Hverfisgötu

4
Fólk

Borgarstjórabíll til sölu

5
Landið

Hestaleigu lokað vegna vanrækslu

6
Minning

Margrét Hauksdóttir er fallin frá

7
Innlent

Ókunnugur maður elti Freyju um miðbæinn

8
Heimur

Macron sleginn í andlitið af eiginkonu sinni

9
Peningar

„Seinustu vikur hafa verið erfiðar“

10
Minning

Hafsteinn Jóhannsson er fallinn frá

Til baka

Hestaleigu lokað vegna vanrækslu

Hrossunum leið ekki vel að sögn MAST

íslenskir hestar
Hinn gullfallegi íslenski hesturMyndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Thomas Quine

Í tilkynningu frá MAST er greint frá störfum stofnunarinnar í apríl. Þar segir að lögð hafi verið stjórnvaldssekt að upphæð 500.000 kr. á fiskeldisfyrirtæki í suðausturumdæmi vegna brota á lögum um dýravelferð.

Fyrirtækið vanrækti, samkvæmt MAST, að fjarlægja sjúka eða slasaða fiska úr eldiskvíum og aflífa þá eins og skylt er.

Þá skildi kattareigandi í suðvesturumdæmi læðu með kettlinga eina eftir á heimili sínu án fóðurs og vatns. Að auki er bannað að skilja kettlinga yngri en 16 vikna eftir eina og án eftirlits lengur en sex klukkutíma í senn.

Kattareigandinn var því sviptur vörslum dýranna og þeim komið í fóstur.

Úrbætur á kostnað bónda

Sauðfjárbóndi í norðausturumdæmi vanfóðraði kindur og hafði of mikinn þéttleika á þeim.

Þar sem hann taldist ekki ráða einn við búið var honum tilkynnt að MAST myndi ráða vinnumann út sauðburðinn honum til aðstoðar. Þetta yrði gert á kostnað bóndans.

Þá var bóndi í norðvesturumdæmi var sviptur mjólkursöluleyfi 4. apríl en veitt það að nýju 10. apríl eftir endurbætur. Lagðar voru dagsektir á bóndann að upphæð 10.000 kr. á dag til að knýja fram bætta hópaskiptingu, fóðrun, hreinleika og brynningu í uppeldi nautgripa og einnig til að draga úr þéttleika.

Rekstur hestaleigu stöðvaður

Rekstur hestaleigu í suðausturumdæmi var stöðvaður vegna brota á velferð hrossanna að sögn MAST.

Gerð var krafa um að horuðustu hestarnir yrðu aflífaðir innan viku eða ráðstafað til ábyrgra aðila sem Matvælastofnun viðurkenndi. Öðrum hrossum yrði ráðstafað til annarra innan 4 vikna.

MAST sagði einni frá nautgripabónda í norðausturumdæmi sem braut á velferð dýranna. Fóðrun og brynningu ábótavant og einnig skjóli. Lagðar voru á hann dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag til að knýja á um úrbætur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Vestmannaeyjar
Grein

Starfsmaður leikskóla í Vestmannaeyjum sló til barns

TikTok stjarnan
Heimur

TikTok-stjarnan látin, aðeins 19 ára að aldri

Ólafur Ólafsson körfubolti Grindavík
Fólk

Hefur ekki áhuga á að leigja gamla húsið sitt

Helga Vala Helgadóttir
Innlent

Helga Vala leiðréttir frétt RÚV

Freyja Sofie
Myndband
Innlent

Ókunnugur maður elti Freyju um miðbæinn

Þorgerður Katrín
Pólitík

Uppreisn gerir Viðreisn erfitt fyrir

||
Minning

Tómas Búi Böðvarsson er látinn

Loka auglýsingu