1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

Lýsa yfir óvissustigi á Austurlandi vegna snjóflóða

Austfirðingar eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspám og færð.

Brimrún
Björgunarsveitin Brimrún, EskifirðiBjörgunarsveitir á Austurlandi eru í viðbragðsstöðu
Mynd: Facebook

Veðurstofa Íslands hefur sett á óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum þar sem búist er við versnandi veðri. Þó er ekki talin hætta fyrir byggð að svo stöddu, en vöktun hefur verið hert. Þetta kemur fram í frétt Austurfréttar.

Samkvæmt Magnúsi Hreini Jónssyni, fagstjóra ofanflóðamála, er spáð austanstórhríð síðar í dag og áframhaldandi hvössum norðaustanáttum með mikilli úrkomu í nótt. Slík skilyrði geta aukið líkur á snjóflóðum á þekktum hættusvæðum.

Gul veðurviðvörun var gefin út í gær fyrir Austfirði og Austurland vegna hvassviðris og snjókomu og gildir hún fram á morgundag. Óvissustig tók gildi á flestum fjallvegum síðdegis í gær og hefur meðal annars verið lokað yfir Fjarðarheiði. Þá er þungfært á Fagradal og Vatnsskarði og sérstaklega hefur verið bent á snjóflóðahættu á Fagradal.

Óvissustig þýðir að veðurfar geti þróast þannig að hætta skapist fyrir fólk eða byggð, og því eru viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu ef grípa þarf til aðgerða, svo sem rýminga.

Aðfaranótt sunnudags féllu fjórtán snjóflóð á Austfjörðum eftir snjókomu. Flest þeirra féllu ofan Neskaupstaðar, auk flóða á Fagradal og úr Bjólfi við Seyðisfjörð. Flóðin voru lítil að umfangi, en búist er við meiri snjókomu með veðrinu sem nú er í aðsigi.

Almannavarnir hvetja íbúa á Austurlandi til að fylgjast vel með veðurspám og færð á næstu dögum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Landið

Ekið á gangandi vegfaranda
Landið

Ekið á gangandi vegfaranda

Lögreglan leitar að vitnum
Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Loka auglýsingu