
Lögregla hafði í ýmsu að snúast á höfuðborgarsvæðinu í nótt, meðal annars vegna fíkniefnamála, umferðarlagabrota og kvartana frá íbúum.
Í miðbænum var einn aðili handtekinn grunaður um brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg og vörslu fíkniefna. Þá var annar handtekinn í sama hverfi, grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Málin eru í rannsókn.
Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna. Við nánari athugun kom í ljós að viðkomandi var einnig sviptur ökuréttindum.
Tilkynnt var um aðfinnsluvert aksturslag í Hafnarfirði og höfðu lögreglumenn afskipti af málinu. Þá voru skráningarmerki fjarlægð af nokkrum bifreiðum í hverfinu sem reyndust vera ótryggðar.
Í Kópavogi barst beiðni um aðstoð vegna tónlistarhávaða og sinnti lögregla útkallinu á vettvangi.
Í Árbænum var óskað eftir aðstoð vegna hótana og er það mál til skoðunar. Þá var þar einnig ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíknilyfja. Sá reyndist jafnframt vera sviptur ökuréttindum.

Komment