Jens Hjartarson hefur verið dæmdur fyrir ýmis brot í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hann var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa, þriðjudaginn 18. júlí 2023, fyrir utan N1 við Háholt 11 í Mosfellsbæ, veist með ofbeldi að þáverandi kærustu sinni, skallað hana í höfuðið og slegið hana ítrekað með krepptum hnefa í andlit og bringu, með þeim afleiðingum að hún hlaut heilahristing, skurð á hægra augnloki, mar á kinnbeini og yfirborðsáverka á höfði og yfir brjóstbeini.
Þá var Jens einnig ákærður fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg, fíkniefnalagabrot, umferðarlagabrot, eignaspjöll og brot gegn valdstjórninni. Fallið var þó frá ákæru fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Hann játaði brot sín en hann hefur verið ítrekað dæmdur í fangelsi.
Jens var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi og þarf að borga fyrrverandi kærustu sinni 400 þúsund krónur auk vaxta.

Komment