1
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

2
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

3
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

4
Pólitík

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar

5
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

6
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

7
Innlent

Halldór Ingi enn ófundinn

8
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

9
Innlent

Eldi Smára hafnað

10
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

Til baka

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra

„Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á velferð þeirra“

blóðmerahald
Blóðmerahald er leyfilegt á ÍslandiDýraverndarsamtökin vilja aukna réttarvernd til handa dýrum
Mynd: © Animal Welfare Foundation.

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi kalla eftir breytingum á lögum svo viðurkenndum dýraverndarsamtökum verði heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra. Samtökin segja núverandi fyrirkomulag skapa „rof í réttarvernd dýra“ hér á landi.

Samtökin segja mikið skorta á almennan aðgang að réttlæti fyrir hönd dýra á Íslandi. Dýraverndarsamtök geti í dag ekki borið ákvarðanir Matvælastofnunar (MAST), sem fer með eftirlit með velferð dýra, undir æðra stjórnvald.

Þar með séu möguleikar samtakanna til að gæta hagsmuna dýra innan stjórnsýslunnar takmarkaðir eða jafnvel engir. Að mati samtakanna samræmist það illa mikilvægu hlutverki þeirra við að gæta hagsmuna og velferðar dýra.

Kæru vegna starfsleyfis Ísteka vísað frá

Samtökin benda meðal annars á mál sem kom upp í sumar þegar íslensk og erlend dýraverndarsamtök kærðu ákvörðun MAST til atvinnuvegaráðuneytisins.

Kæran laut að ákvörðun MAST um að veita Ísteka hf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum vegna lyfjaframleiðslu. Samtökin kröfðust þess að ákvörðunin yrði ógilt eða, til vara, endurskoðuð.

Að mati samtakanna uppfyllir blóðmerahald ekki skilyrði þeirrar reglugerðar sem starfsemin fellur undir. Þau vísa meðal annars til þess að ekki eigi að heimila notkun dýra í vísindaskyni ef hægt sé að ná sama markmiði með öðrum aðferðum.

Samtökin segja slíka valkosti vera fyrir hendi, meðal annars þar sem fjöldi frjósemislyfja sé á markaði auk aðferða í búfjárrækt sem ekki krefjist notkunar lyfja.

Þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir neikvæða umsögn fagráðs um velferð dýra, hafi MAST veitt Ísteka skilyrt starfsleyfi í vor.

Atvinnuvegaráðuneytið tók hins vegar ekki efnislega afstöðu til þeirra sjónarmiða sem fram komu í kærunni. Kærunni var vísað frá á þeim grundvelli að dýraverndarsamtökin hefðu ekki nægilega beina og lögvarða hagsmuni af málinu til að teljast aðilar þess.

Segja þetta endurtaka sig

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi segja þetta ekki einsdæmi.

Erindum dýraverndarsamtaka vegna ákvarðana og málsmeðferðar MAST sé ítrekað vísað frá með þeim rökum að samtökin teljist ekki eiga aðild að málunum.

Afleiðingin sé sú að ákvarðanir stjórnvalda sem varði velferð dýra geti farið hjá því að sæta efnislegri endurskoðun æðra stjórnvalds.

„Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á velferð þeirra,“ segja samtökin.

Þegar samtökum sem hafi það hlutverk að gæta hagsmuna dýra sé jafnframt synjað um aðild að slíkum málum myndist að þeirra mati „augljóst rof í réttarvernd dýra“.

Vilja sambærilega heimild og umhverfissamtök hafa

Samtökin kalla nú eftir því að við heildarendurskoðun laga um velferð dýra, sem nú er til meðferðar hjá atvinnuvegaráðuneytinu, verði skýr lagaheimild sett inn um kæruheimildir dýraverndarsamtaka.

Þau vilja að viðurkenndum dýraverndarsamtökum verði heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra, að sambærilegum skilyrðum uppfylltum og gilda um umhverfisverndarsamtök.

„Efla þarf réttarvernd dýra á Íslandi. Dýraverndarsamtök verða að geta leitað réttar fyrir hönd dýra innan stjórnsýslunnar,“ segja samtökin.

Yfirlýsingin í heild sinni

Bæta þarf réttarvernd dýra

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi telja mikið skorta á almennan aðgang að réttlæti fyrir hönd dýra hér á landi. Dýraverndarsamtök geta ekki borið ákvarðanir Matvælastofnunar (MAST) sem fer með eftirlit með velferð dýra, undir æðra stjórnvald.

Möguleikar dýraverndarsamtaka til að vera málsvarar dýra innan stjórnsýslunnar eru því

takmarkaðir eða engir. Slík staða samræmist illa því mikilvæga hlutverki sem dýraverndarsamtök gegna við að gæta hagsmuna og velferðar dýra. Í sumar lögðu íslensk og erlend dýraverndarsamtök fram stjórnsýslukæru til atvinnuvegaráðuneytisins vegna ákvörðunar MAST um að veita Ísteka hf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum vegna lyfjaframleiðslu. Í kærunni var þess krafist að ákvörðun MAST yrði ógilt eða til vara, endurskoðuð. Að mati samtakanna stenst blóðmerahald ekki skilyrði þeirrar reglugerðar sem starfsemin fellur undir. Skýrt er kveðið á um að ekki skuli heimila notkun á dýrum í vísindaskyni ef unnt er að ná sama markmiði með öðrum aðferðum. Að mati samtakanna eru slíkir kostir fyrir hendi, enda er til fjöldi frjósemislyfja á markaði auk aðferða í búfjárrækt þar sem notkun lyfja er ekki krafist.

Þrátt fyrir þetta og neikvæða umsögn fagráðs um velferð dýra veitti MAST Ísteka hf. skilyrt

starfsleyfi í vor. Atvinnuvegaráðuneytið tók hins vegar ekki efnislega afstöðu til þeirra sjónarmiða sem fram komu í kærunni. Henni var vísað frá á þeim grundvelli að dýraverndarsamtökin væru ekki talin hafa nægilega beina og lögvarða hagsmuni af málinu til að teljast aðilar þess. Þetta er ekki einsdæmi. Erindum dýraverndarsamtaka vegna ákvarðana og málsmeðferðar MAST er ítrekað vísað frá á þeim grundvelli að samtökin teljist ekki eiga aðild að málunum. Afleiðingin er sú að ákvarðanir sem varða velferð dýra geta farið hjá því að sæta efnislegri endurskoðun æðra stjórnvalds.

Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á velferð þeirra. Þegar samtökum sem hafa það hlutverk að gæta hagsmuna dýra er jafnframt synjað um aðild að slíkum málum myndast augljóst rof í réttarvernd dýra.

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi kalla því eftir því að við

heildarendurskoðun laga um velferð dýra, sem nú er til meðferðar hjá atvinnuvegaráðuneytinu, verði tryggt með skýrri lagaheimild að viðurkennd dýraverndarsamtök geti kært stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra, að sambærilegum skilyrðum uppfylltum og gilda um umhverfisverndarsamtök.

Efla þarf réttarvernd dýra á Íslandi. Dýraverndarsamtök verða að geta leitað réttar fyrir

hönd dýra innan stjórnsýslunnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“
Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Þingmaður Samfylkingarinnar kallaði eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála
„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“
Innlent

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður
Pólitík

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður

Níu handteknir eftir röð ofbeldisfullra göturána á Tenerife
Heimur

Níu handteknir eftir röð ofbeldisfullra göturána á Tenerife

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin
Heimur

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks
Pólitík

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks

Víðir varar við úreltu viðvörunarkerfi Íslands
Pólitík

Víðir varar við úreltu viðvörunarkerfi Íslands

Tveir menn grunaðir um grófa nauðgun á tveimur stúlkum í Malmö
Heimur

Tveir menn grunaðir um grófa nauðgun á tveimur stúlkum í Malmö

Seldi allt sitt fyrir TikTok-ást sem var aldrei raunveruleg
Heimur

Seldi allt sitt fyrir TikTok-ást sem var aldrei raunveruleg

Christina Applegate ekki með MS-sjúkdóminn eftir allt saman
Heimur

Christina Applegate ekki með MS-sjúkdóminn eftir allt saman

Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir Íslandi
Myndband
Innlent

Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir Íslandi

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku
Fólk

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

Innlent

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“
Innlent

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“

Atli Þór Fanndal hjólar í bæjarstjóra Ölfuss
Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“
Innlent

Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“

Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir Íslandi
Myndband
Innlent

Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir Íslandi

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karla
Innlent

Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karla

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað
Innlent

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

Loka auglýsingu