1
Fólk

Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands

2
Innlent

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

3
Innlent

Einar bauð Davíð í hádegismat

4
Menning

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2

5
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

6
Innlent

Hótanir í Árbænum

7
Heimur

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum

8
Heimur

Hulin ráðgáta í Tver-skógum: Saga yfirgefinnar hvelfingar

9
Heimur

Lindsay Lohan heil á húfi

10
Heimur

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael

Til baka

Kate Winslet gagnrýnir fegrunaraðgerðir fræga fólksins

„Þessi fyrirlitning á eigin heilsu er skelfileg“

Kate Winslet
Kate WinsletKate hefur sterkar skoðanir á fegrunaraðgerðum
Mynd: VALERIE MACON / AFP

Kate Winslet segir að hún hafi alvarlegar áhyggjur af því hve mikið fegrunaraðgerðir og megrunarlyf séu orðin útbreidd, og telur að sumir séu ekki að nota þetta til að styrkja sjálfa sig, heldur til að breyta sér í einhvern sem þeir eru ekki.

Leikkonan ræddi málið í löngu viðtali við breska dagblaðið The Times, þar sem hún útskýrði hvers vegna hún hefur aldrei farið í fegrunaraðgerðir og fullyrti að hún hafi aldrei „farið undir hnífinn“.

Winslet segir að það hryggi sig að sjá konur, sem eru nú þegar fallegar, láta gera ýmislegt við sig. Hún segir að það sé óhugnanlegt að sjálfsálit fólks geti byggst svona mikið á útliti.

Hún segir að þetta sé stundum ruglandi: stundum sjái hún leikara á rauða dreglinum sem eru náttúrulega fallegir og hún fái á tilfinninguna að samfélagið sé að breytast til hins betra, en síðan sjái hún hversu margir nota megrunarlyf og verði aftur steinhissa.

„Sumir taka ákvarðanir til að vera þeir sjálfir, aðrir gera allt sem þeir geta til að vera það ekki. Og vita þau yfirhöfuð hvað þau eru að setja í líkamann? Þessi fyrirlitning á eigin heilsu er skelfileg. Þetta pirrar mig meira núna en nokkru sinni fyrr. Það er algjört helvítis kaós þarna úti,“ segir Winslet.

En hún segir að fræga fólkið sem fer í aðgerðir sé í raun aðeins toppurinn á ísjakanum, það sem hún hafi miklu meiri áhyggjur af sé „fólkið sem sparar fyrir botoxinu eða draslinu sem það setur í varirnar“.

Mikið af frægum einstaklingum hafa undanfarið talað opinskátt um þær aðgerðir sem þeir hafa farið í, sumir hafa jafnvel gefið upp nákvæman fjölda millilítra í brjóstastækkunum eða viðurkennt notkun á lyfjum eins og Ozempic.

Kylie Jenner hefur jafnframt játað að hún sjái eftir sumu sem hún lét gera, og segist ætla að hvetja dóttur sína, Stormi, til að fara ekki þessa leið.

Aðrir hafa hins vegar fagnað þessari opnu umfjöllun og telja að hún dragi úr fordómum gagnvart fegrunaraðgerðum og geri umræðuna heilbrigðari.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku
Fólk

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku

„Oftast hefði verið gott að fá ritlaun en sjaldan hefði það verið jafn gott og nú“
Bruce Campbell greinir frá krabbameini
Heimur

Bruce Campbell greinir frá krabbameini

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf
Peningar

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf

Varað við salmónellusýkingu í þekktu fæðubótarefni
Innlent

Varað við salmónellusýkingu í þekktu fæðubótarefni

Samkynhneigðir illa séðir hjá kaþólsku kirkjunni á Íslandi
Innlent

Samkynhneigðir illa séðir hjá kaþólsku kirkjunni á Íslandi

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý
Heimur

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað
Myndir
Fólk

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað

Erlendur maður gripinn á stað sem hann mátti ekki vera á
Innlent

Erlendur maður gripinn á stað sem hann mátti ekki vera á

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael
Heimur

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum
Heimur

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns
Innlent

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

Heimur

Bruce Campbell greinir frá krabbameini
Heimur

Bruce Campbell greinir frá krabbameini

Sló í gegn í Evil Dead-myndunum
Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum
Myndband
Heimur

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý
Heimur

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael
Heimur

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum
Heimur

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum

Loka auglýsingu