1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

7
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

8
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

9
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Tveir afar reyndu að bjarga lífi stúlku sem stungin var til bana

„Ég sé enn andlit hennar“

Chloe Watson
Chloe WatsonChloe var aðeins 16 ára gömul þegar hún var myrt
Mynd: Facebook

Maður lýsir því í breskum miðlum í dag, hvernig hann reyndi í örvæntingu að bjarga lífi 16 ára stúlku sem hann telur hafa verið stungin í bakið og hálsinn.

Sextíu og fjögurra ára afi veitti stúlkunni endurlífgun eftir að hún fannst meðvitundarlaus í götunni hans, en hún lést síðar á sjúkrahúsi.

Morðrannsókn er hafin eftir að stúlkan lést snemma á laugardagsmorgni. Þrír fullorðnir og eitt barn hafa verið handtekin í tengslum við málið.

Lögregla leitaði lengi leiða til að bera kennsl á stúlkuna og óskaði eftir upplýsingum frá almenningi. Síðar kom í ljós að hún bjó með móður sinni og fjölskyldu í Cleckheaton í Vestur Jórvíkurskíri, um 27 kílómetra frá vettvangi.

Í dag var hún nafngreind en hún hét Chloe Watson og vinir hennar minntust hennar á samfélagsmiðlum eftir að fjölskylda hennar hafði verið látin vita.

Samkvæmt Mirror reyndu tveir afar að bjarga Chloe eftir að þeir fundu hana slasaða í rólegri íbúðagötu. Wayne Mallows, 64 ára, sagði að hann hefði vaknað um klukkan fimm um morguninn en ekki orðið var við neitt fyrr en einhver bankaði upp á um 50 mínútum síðar.

„Ég var kallaður út úr húsinu um klukkan 5:50 á laugardagsmorgni af konu sem var að ganga með hundinn sinn. Hún sagði að nágranni minn væri úti að reyna að endurlífga unga stúlku,“ sagði hann.

Hann sagði að nágranninn, sem hóf endurlífgunina, byggi hinum megin við götuna.

Stúlkan lá á gangstéttinni beint á móti húsi nágrannans við Kennerleigh Avenue í Crossgates-hverfi í austurhluta Leeds, þar sem svæðið er nú girt af lögreglu.

Mallows sagðist hafa séð að nágranni hans væri orðinn þreyttur. „Ég spurði hvort hringt hefði verið á sjúkrabíl og þá sá ég síma á jörðinni með hátalara í gangi. Starfsfólk sjúkraflutninga var að leiðbeina honum,“ sagði hann.

Mallows, sem starfar í heyrnarþjónustu hjá NHS, sagðist hafa fengið þjálfun í endurlífgun en aldrei þurft að framkvæma hana á raunverulegri manneskju áður.

„Ég tók við þar til sjúkrabíllinn kom um tíu mínútum síðar,“ sagði hann. „Þegar hann kom um klukkan sex byrjuðu sjúkraflutningamenn að reyna að fá hjartað í gang og framkvæmdu hjartahnoð.

Þeir gerðu það í um fimm mínútur áður en þeir fluttu hana í sjúkrabílinn. Sífellt fleiri lögreglumenn voru að mæta á staðinn.“

Hann sagði að stúlkan hefði verið stungin í bakið og einnig verið með sár á hálsinum.

Þrátt fyrir áfallið sagðist Mallows vera ágætur, en eiga erfitt með að losna við myndina af andliti hennar úr huga sínum. „Ég sé enn andlit hennar í huga mér,“ sagði hann. „Mér fannst hún líta út fyrir að vera mjög ung, yngri en 16 ára.“

Hann bætti við að Kennerleigh Avenue og nærliggjandi götur væru yfirleitt mjög rólegar. „Hér býr aðallega eldra fólk sem hefur flutt hingað til að njóta elliáranna,“ sagði hann.

Lögregla sagði að tilkynning hefði borist um klukkan 5:55 á laugardag um stúlkuna sem fannst alvarlega slösuð á svæðinu.

Í fyrstu birti lögregla lýsingu á henni til að bera kennsl á hana, sem granna konu um 157 cm á hæð á síðari hluta unglingsára.

Nú hafa vinir og fjölskylda tjáð sorg sína á samfélagsmiðlum. Einn sagði þau vera „miður sín“ og að hún hefði elskað litlu systur sínar mikið.

Vinir hennar skrifuðu einnig: „Persónuleiki þinn, skrýtni hláturinn þinn og klisjukenndu brandararnir þínir verða óviðjafnanlegir. Þú passaðir alltaf upp á að öllum liði vel og væru elskaðir … þetta er ótrúlega sárt.“

Fjórir einstaklingar, tvær konur, 18 ára, karlmaður, 20 ára, og 17 ára drengur, hafa verið handtekin grunuð um morð og eru í haldi lögreglu.

Rannsóknarlögreglumaðurinn Marc Bowes sagði: „Eftir að við óskuðum eftir upplýsingum höfum við nú borið kennsl á hina látnu sem 16 ára stúlku frá Cleckheaton-svæðinu.

Fjölskylda hennar hefur verið látin vita og við styðjum hana á þessum erfiða tíma.

Rannsókn á aðdraganda dauða hennar stendur yfir og við hvetjum alla sem voru á Kennerleigh Avenue snemma morguns í gær til að hafa samband ef þeir hafa upplýsingar sem geta hjálpað.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu