
Kennarinn Melissa Martin hefur neitað sök í réttarhöldum sem hófust í síðustu viku í Barry Town í Vermont í Bandaríkjunum en hún var ákærð fyrir að vera undir áhrifum eiturlyfja í kennslustund og vera með eiturlyf á sér í skólanum.
„Mörg okkar urðu bara miður sín, bara agndofa, því við bjuggumst aldrei við að eitthvað svona gæti gerst í héra,“ sagði Sabrina Shea, sem á son sem sækir skólann. „Ég varð reið. Skóli á að vera öruggur staður. Börnin eiga að geta leitað til kennara. Nú var hún undir áhrifum og hegðaði sér undarlega. Hvernig á nemendum að líða vel í kringum hana?“
Samkvæmt gögnum frá dómstólum leiddi leit með fíkniefnahundi í ljós eiturlyf í jakka og bakpoka Martin í ólæstri kennslustofu. Eiturlyfjunum var lýst sem hvítu dufti í poka, en var efnið undir þremur grömmum
Lögreglan var kölluð til eftir að nemandi tók eftir „óvenjulegri“ hegðun Martin. „Hann gerði það rétta, og það er hluti af námsefni okkar. Ef þú heyrir eitthvað eða hefur áhyggjur af einhverju, þá segirðu frá,“ sagði Joan Canning, skólastjórinn
Í bréfi sem sent var til foreldra í vikunni segir Canning að Martin hafi játað eiturlyfjanotkun og hafi verið rekin úr starfi samkvæmt stefnu skólans um algert bann við vímuefnanotkun á vinnustað. Hún segir að Martin hafi farið í gegnum bakgrunnsathugun eins og lög gera ráð fyrir. „Við gerðum í raun tvær bakgrunnsathuganir, og í bæði skiptin kom allt vel út. Við fundum ekkert,“ sagði Canning.
Komment