1
Landið

Tvíburasystur björguðu barni í sundlauginni á Egilsstöðum

2
Innlent

Ný auglýsingaherferð Arion banka sögð „til skammar“

3
Fólk

Steinar og Katrín keyptu hús fyrir tæpan hálfan milljarð króna

4
Fólk

Tvíburasysturnar sem björguðu barni: „Þetta fór vel og það skiptir öllu“

5
Minning

Óskar Sigurðsson er fallinn frá

6
Pólitík

„Í dag er hún valdamesta manneskjan í Sjálfstæðisflokknum“

7
Innlent

Jóhann ók freðinn á gangandi konu

8
Landið

Halldór Jón hafði betur gegn Sjálfstæðiskonu

9
Heimur

Einn frægasti glæpamaður Svíþjóðar látinn

10
Innlent

Lögreglan varar við gjafaleikjum á Facebook

Til baka

Krefjast tafarlausra aðgerða í Neskaupstað

Stefanía Helgadóttir vill beina athygli bæjaryfirvalda að þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er vegna fækkunar almenningsleikvalla í Neskaupstað

Stefanía Helgadóttir Neskaupsstað
Stefanía vill tafarlausar aðgerðir í NeskaupstaðVill beina athygli bæjaryfirvalda að alvarlegri stöðu sem upp er komin vegna fækkunar almenningsleikvalla í Neskaupstað

Stefanía Helgadóttir skrifar opið bréf til bæjarráðs Fjarðabyggðar fyrir hönd Kvenfélagsins Nönnu í Neskaupstað og vill beina athygli bæjaryfirvalda að þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er vegna fækkunar almenningsleikvalla í Neskaupstað.

Segir Stefanía í bréfinu sem birtist á vefmiðlinum Austurfrétt að kvenfélagið Nanna í Neskaupstað vilji „beina athygli bæjaryfirvalda að þeirri alvarlegu stöðu sem upp er kominn vegna fækkunar almenningsleikvalla í Neskaupstað.“

Hún segir að þessi „þróun veldur okkur miklum áhyggjum“ og bendir á að þegar Neskaupstaður hafi sameinast Fjarðabyggð árið 1998 verið þar fjöldi leikvalla,“ en nú tæpum 30 árum síðar er aðeins einn leikvöllur standandi.“

Neskaupstaður

Stefanía nefnir að á einungis síðustu „þremur árum hafa þrír leikvellir verið fjarlægðir, án þess að nýir hafi komið í þeirra stað. Að sjálfsögðu eru gildar ástæður fyrir brottfalli einstakra leikvalla — einn þeirra fór meðal annars í snjóflóði — en það breytir því ekki að um er að ræða afturför sem dregur úr lífsgæðum íbúa bæjarins. Og það snertir sérstaklega þá sem síst skyldi: börnin okkar.“

Í Fjarðabyggð búa yfir eitt þúsund börn, þar af um 300 í Neskaupstað og í þeirra nafni vill „Kvenfélagið Nanna hvetja til tafarlausra aðgerða af hálfu bæjarfélagsins í þágu uppbyggingar grænna svæða og leikvalla, bæði í Neskaupstað og í sveitarfélaginu í heild.“

Og Stefanía spyr að því hver sé stefna Fjarðabyggðar er kemur að uppbyggingu grænna svæða og leikvalla, og er gert ráð fyrir nýjum leikvöllum í aðalskipulagi fyrir Neskaupstað, og spyr einnig hvenær sé gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist.

Hún segir að „undanfarið hefur verið aukin uppbygging í bænum. Nýir íbúar setjast hér að, brottfluttir koma heim, hús rísa og framtíðin björt. Börnin okkar eiga skilið gott umhverfi til að leika sér og þroskast í. Kvenfélagið Nanna er þess fullvisst að fjölgun leikvalla og tengdra grænna svæða myndi styrkja samfélagið og bæta lífsgæði íbúanna.“

Stefanía segir að lokum að með þessu bréfi „viljum við hvetja bæjaryfirvöld til að hrinda í framkvæmd þeim áætlunum sem þegar kunna að liggja fyrir. Ef slík stefna er ekki þegar til staðar, krefjumst við þess að hún verði mótuð og að uppbygging leikvalla og grænna svæða verði sett í forgang.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Kian Harratt
Myndband
Heimur

Knattspyrnumaður rotaði konu með stól

Hefur áður komið sér í töluverð vandræði
Tekin daginn er morðin voru framin. Ræddi við fólkið flest á myndinni. -sms
Innlent

Harmleikurinn við höfnina: Konan laus af sjúkrahúsi

MAST
Innlent

MAST varar við íslensku rommi

Eyjólfur Ármannsson
Innlent

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýr ávinningur fyrir grunnskólabörn

Raufarhöfn -rautt hús
Innlent

Hafa kært úrskurðinn til Landsréttar

Wander Franco
Heimur

Hafnaboltastjarna dæmd fyrir að brjóta á barni

Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Pólitík

„Í dag er hún valdamesta manneskjan í Sjálfstæðisflokknum“

Lynghólar 1
Fólk

Auglýsingagúru selur gullfallegt raðhús

Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Innlent

Stjórnvöld viðurkenni stuðning við blaðamennsku sem þátt í varnarviðbúnaði

Júlí Heiðar Þórdís Björk
Menning

Júlí Heiðar er dáinn úr ást

Kerti
Minning

Óskar Sigurðsson er fallinn frá

Hús húsnæði heimili fasteignir
Peningar

Óvænt verri verðbólga hækkar verðtryggð lán

Landið

Akureyri
Landið

Raðþjófnaður á Akureyri

Lögreglan segir málið óþolandi
Eyjafjörður
Landið

Reynir að stöðva varasamt fiskeldi í Eyjafirði

Stefanía Helgadóttir Neskaupsstað
Landið

Krefjast tafarlausra aðgerða í Neskaupstað

Sundlaug Egilsstaða
Landið

Tvíburasystur björguðu barni í sundlauginni á Egilsstöðum

Halldór Jón Gíslason
Landið

Halldór Jón hafði betur gegn Sjálfstæðiskonu

Benedikt Barðason
Landið

Benedikt valinn fram yfir Daníel Frey og Hörpu

Loka auglýsingu