1
Fólk

Dómsmáli Eddu Falak lokið

2
Minning

Syrgja Víglund unga og stofnað til söfnunar

3
Innlent

Matgæðingur fluttur á bráðamóttökuna

4
Innlent

Gerðu þarfir sínar á gólfið á stórtónleikum

5
Fólk

Rokkdrottning selur í 101

6
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á bráðamóttöku eftir líkamsárás

7
Innlent

Lögreglan staðfestir andlát mannsins

8
Heimur

250 milljónir býflugna sluppu eftir slys

9
Peningar

Hefur litlar áhyggjur af gjaldtöku við náttúruperlur

10
Sport

Jóhanna Björg vill verða forseti

Til baka

Leó XIV páfi segir nafnið endurspegla samfélagslega ábyrgð

pope-leo-xiv-050825-9-1f856aa9fabd4f97a913fde4974eb4f7
Leó XIV páfi

Leó XIV páfi sagðist í dag ætla að feta í fótspor forvera síns sem leiðtogi kirkjunnar og hrósaði Frans páfa fyrir „algjöra einlægni í þjónustu“, en nafnaval hans endurspegli skuldbindingu við samfélagsmál, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vatíkaninu.

Í ávarpi til kardínála, tveimur dögum eftir að hann var kjörinn sem 267. páfi kaþólsku kirkjunnar, sagði hinn bandaríski Leó, sem fæddist í Chicago undir nafninu Robert Francis Prevost, að páfi væri „auðmjúkur þjónn Guðs og bræðra og systra sinna — og ekkert annað en það.“

Í einu af sínum fyrstu ræðum sem páfi lýsti hann sjálfum sér sem „óverðugum erfingja heilags Péturs“ og hrósaði Frans fyrir trúfesti við „hófsaman og einfaldan lífsstíl.“

„Við skulum taka við þessari dýrmætu arf­leifð og halda áfram ferðinni, innblásin af þeirri von sem fæðist af trú,“ sagði hann samkvæmt ræðu sem Vatíkanið birti í heild sinni.

Leó er fyrsti páfi kaþólsku kirkjunnar — sem telur um 1,4 milljarð manna — sem kemur frá Bandaríkjunum. Hann sagði að nafnið Leó XIV væri valið til heiðurs Leó XIII, páfa á 19. öld sem barðist fyrir réttindum verkafólks.

„Ég valdi nafnið Leó XIV,“ sagði hann, „því nafni minn frá fyrri tíð tók á samfélagslegum málum á tímum fyrstu iðnbyltingarinnar.“

Í dag, bætti hann við, sé samfélagskenning kirkjunnar enn mikilvægari „til að bregðast við annarri iðnbyltingu og þróun á sviði gervigreindar sem skapar nýjar áskoranir við vernd mannlegrar reisnar, réttlætis og vinnu.“

Í fyrstu predikun sinni sem páfi á föstudag hvatti Leó kirkjuna til að endurvekja trú meðal milljóna manna og varaði við því að skortur á trú tengdist oft „tómleika, skorti á miskunn, alvarlegum brotum gegn mannlegri reisn, kreppu fjölskyldunnar og mörgum öðrum sárum sem hrjá samfélagið.“

Leó, sem tilheyrir Ágústínusarreglunni og var gerður að kardínála af Frans árið 2023, er ekki mjög þekktur á heimsvísu en hafði þó verið nefndur í umræðum um hugsanlega eftirmenn Frans fyrir páfakjör.

Á næstu dögum munu orð hans og gjörðir verða í brennidepli.

Á morgun mun hann ávarpa fólkið á ný frá svölum Péturskirkju og flytja Regina Coeli bænina.

Í næstu viku hyggst hann funda með erlendum sendiherrum í Vatíkaninu og þann 18. maí mun hann leiða vígslumessu sína á Péturstorgi, þar sem búist er við heimsleiðtogum og þúsundum pílagríma.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


peningar
Peningar

Lukkunar pamfíll fær rúmar 50 milljónir

bráðamóttakan - landspítalinn
Innlent

Einn fluttur á bráðamóttökuna eftir líkamsárás á bar

Laugardalshöll
Innlent

Gerðu þarfir sínar á gólfið á stórtónleikum

Landspítalinn
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á bráðamóttöku eftir líkamsárás

Raleigh
Myndband
Heimur

Tveir létust í skothríð í heimahúsi í Bandaríkjunum

katarina
Myndir
Fólk

Rokkdrottning selur í 101

Ólöf Kristín Sívertsen forseti Ferðafélags Íslands
Peningar

Hefur litlar áhyggjur af gjaldtöku við náttúruperlur

Loka auglýsingu