1
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

2
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

3
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

4
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

5
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

6
Innlent

Manía í miðborginni

7
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

Til baka

Hödd segist taka „glöð á móti heimsóknum á Hólmsheiði“

Hödd Vilhjálmsdóttir upplýsir um að hún hafi fengið afhenta stefnu „sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 4. september“

Hödd Vilhjálms
Hödd VilhjálmsdóttirHitti stefnuvott
Mynd: X-fyrrum Twitter

Almannatengillinn Hödd Vilhjálmsdóttir upplýsir um að hún hafi nýverið fengið afhenta stefnu af afskaplega almennilegum stefnuvotti „sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 4. september.“

Hödd nefnir að sá sem stefnir henni sé „Hörður Ólafsson og þó ég hélt ég myndi nú aldrei hrósa honum þá verð ég nú að segja að það kom mér skemmtilega á óvart að hann hefði pung í þetta.“

Bætir því við að „litli kallinn fær prik hjá mér fyrir og enn meira prik fyrir að hafa það fyrir aðalkröfu að pistlar mínir er hann varða verði í heild dæmdir dauðir og ómerkir.“

Hödd nefnir að „mesta prikið fær hann þó fyrir að krefjast þess að ég sitji inni í 2 ár fyrir að segja sannleikann, greiði honum 5 milljónir í miskabætur og til að kóróna sirkusvitleysuna 3 milljónir til að standa straum af birtingu niðurstöðu dómsins í fjölmiðlum.“

Hödd segir að henni hafi nú fundist hann sjaldan „fyndinn en honum tókst árið 2025 að láta mig hlæja. Ég hef verið opin með það að ég hætti fyrst að drekka áfengi 2018 og verið edrú mestan hluta tímans síðan. Ég hef þrjóskast við á köflum því mér hefur þótt ferlega svekkjandi að hreinlega geta ekki eitthvað – og það þá í þessu tilfelli að geta ekki drukkið áfengi. Það er þó orðið kýrskýrt að ég og áfengi verðum ekki frekar samferða í þessu lífi. Í hjarta mínu og í mínum mótþróaraskaða haus er loks sátt um þá niðurstöðu.“

Hún trúir því að hún „hafi þróað með mér alkóhólisma út frá áföllum og sést það skýrt í því að ég tengi áfengi ekki við neitt skemmtilegt heldur hef ég notað það til að deyfa sár sem ég hafði ekki unnið úr. Því sári skilaði ég út kerfinu þann 18. júlí síðastliðinn, þá vel hvítvínslegin. Ég vil þakka hvítvíninu fyrir samfylgdina og þrátt fyrir að það hafi stundum lækkað greindarvísitölu mína undir frostmark þá gaf það mér í kveðjugjöf styrk...eða kannski nógu mikið kæruleysi til að skella sárinu í status og negla honum inn í lokaðri færslu á Facebook.“

Hún segist alls ekki sjá eftir því:

„Því sé ég alls ekki eftir og stend ennþá gallhörð við það sem ég skrifaði því ég veit að það er sannleikurinn. Edrú núna í 41 dag og þeim megin í lífinu ætla ég að vera. Ég stend keik og mæti vitleysu Harðar Ólafssonar og er stolt af því að hafa loksins gert það sem ég þurfti til að fá frið í hjartað mitt.“

Hödd er vongóð og trúir því að „sannleikurinn sigri að lokum en ef svo ólíklega vill til að hann gerir það ekki þá tek ég glöð á móti heimsóknum á Hólmsheiði á meðan ég sit inni. Ég vonast til þess að fangagallinn þar sé appelsínugulur því þó ég segi sjálf frá ... þá er ég bara sjúklega sæt í órange.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“
Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar
Myndband
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Einn þingmaður mætti á mótmælin
Myndir
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust
Heimur

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog
Myndir
Fólk

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Viðtal
Fólk

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg

Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“
Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Loka auglýsingu