1
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

2
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

3
Menning

Stór orð Siggu Beinteins

4
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

5
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

6
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

7
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

8
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

9
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

10
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Til baka

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg

Hjónin Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir féllu fyrir hvort öðru við Skógarfoss á sumarkvöldi þá rétt um tvítugt. Frumburðurinn er Halldóra María sem er með arfgengan genasjúkdóm og er fötluð vegna hans. Svo eiga þau tvo yngri syni sem eru arfberar. Hjónin hafa gengið í gegnum hæðir og lægðir í lífinu og má nefna áfallastreituröskun Árna vegna álags og streitu og þá fékk Guðrún handbolta í höfuðið sem breytti öllu.

Guðrún Ósk og Árni
Hjónin Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn KristjánssonHafa gengið í gegnum ýmislegt.
Mynd: Golli

Einlyft einbýlishús á Álftanesi. Það er stutt í hafið sem skellir stundum grimmum öldunum í fjörusandinn. Stundum virðast þær kyssa sandinn mjúkum kossi. Líf hjónanna í húsinu er svolítið svoleiðis - gleði og sorgir. Þau sitja saman í stofusófanum. Kötturinn Ljósi gengur þangað inn. Annar köttur heimilisins, Píla, lætur ekki sjá sig. Báðir eru með níu líf. Börn hjónanna eru ekki heima. Elst er Halldóra María, þrettán ára. Hún er í Klettskóla. Bræðurnir Arnaldur Smári og Rafael Sindri eru sex og fjögurra ára og eru í skólanum og leikskólanum. Æskan er þeirra og foreldarnir byrja á að segja frá sinni eigin æsku.

„Ég ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík og fór í Hlíðaskóla og svo í Menntaskólann við Hamrahíð,“ segir faðir þeirra, Árni Björn Kristjánsson. Foreldrar hans skildu þegar hann var átta ára og eftir það bjó hann hjá móður sinni og systur í Hlíðunum í Reykjavík og hjá föður sínum aðra hvora helgi næstu árin.

„Skilnaðurinn hafði klárlega áhrif en ég áttaði mig ekki almennilega á því þá. Þegar maður er einhvern veginn í þessu þá var erfitt að átta sig á því og lífið hélt áfram að þróast þó svo að pabbi hafi flutt út. Hann tók svo saman við aðra konu sem átti fjögur börn fyrir þannig að þetta var mikil breyting á stuttum tíma. Ég var í íþróttum og spilaði tennis og ég man eftir því að þó að mamma og pabbi væru skilin þá kom hann alltaf og sótti mig og skutlaði mér á æfingar og æskan var þannig séð góð en líka eiginlega í ákveðnu „blörri“, væntanlega út af áfallinu vegna skilnaðarins. Ég fór ekkert að vinna í því fyrr en seint og um síðir og var örugglega orðinn þrítugur. Ég missti einhverja festu og flakkaði á milli heimilanna. Það sem bjargaði mér væntanlega var að ég var í íþróttum og átti góða vini og góða fjölskyldu. Mamma og pabbi eru yndisleg og hlúðu alveg að mér.“

Árni segist oft hafa upplifað að hann væri pínulítið öðruvísi eins og hann orðar það og segir að það hafi verið vegna þess að hann er rauðhærður. „Ég var svolítið út undan af því að ég leit öðruvísi út en ég var ekki lagður í einelti. Ég tók eftir að ég var ekki eins og flestir aðrir. Ég man að mér fannst það vera leiðinlegt þegar ég var yngri að vera rauðhærður en ég tek því fagnandi í dag að vera ekki eins og öll önnur. Það var kannski byrjunin á því að upplifa að ég var ekki eins og öll önnur.“

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

Árni segir að hann hafi verið svolítið búttaður sem barn og að það og rauða hárið hafi haft áhrif á sjálfstraustið. „Síðan sogaðist ég inn í íþróttir og fór „all in“ í tennis en ég byrjaði í tennis þegar ég var tíu ára og var í tennis þangað til ég var tvítugur.“
Árni segist hafa leitað í mat þegar sér leið illa og það var ákveðin huggun í því. „Ég sótti í sætmeti og bakarísmat eins og vínarbrauð og snúð. Ég man að það einkenndi alveg æskuna að fara út í bakarí og kaupa snúð. Ég veit ekki hvernig það hefði endað ef ég hefði ekki farið síðan á fullu í íþróttir.“ Hann keppti mikið í tennis svo sem á Smáþjóðaleikunum og segir hann að tennisinn hafi bjargað sér að miklu leyti. Eftir að hann hætti að spila tennist fitnaði hann aftur mikið og þá gerði hann sér grein fyrir því að hann væri kannski með óheilbrigt samband við mat. „Ég hafði notað mat sem einhvers konar form af deyfingu. Ég er búinn að sjá ákveðið mynstur og ég tek eftir því í dag að ef ég er stressaður og það er mikið álag þá leita ég í mat og ég hef líka leitað í nikótín. „Þetta er eins og hálfgert snuð fyrir börn. Ég nota þetta sérstaklega þegar ég er undir álagi og svo verður þetta ákveðin fíkn og líkaminn sækir alltaf í þetta. Þetta slakar tímabundið á kerfinu þannig að það hjálpar mér að því leytinu til.“

Árni segist hafa fengið bullandi áhuga á bílasporti þegar hann hætti að æfa tennis og keppti í mótorsporti. Hann segist reyndar alltaf hafa verið með bílaáhuga sem hann hafi fengið frá föður sínum, sem var sjálfur með mikla bíladellu og starfaði við bílainnflutning þegar Árni var barn, og skráði Árni sig á unglingsárunum í nám í bílamálun eftir þrjú ár í MH án þess að ljúka stúdensprófi. Hann sá svo að það hentaði sér ekki og fór að vinna átján ára gamall á skrifstofunni hjá Samskipum. Hann fór svo í kvöldskóla MH og útskrifaðist sem stúdent. Hann byrjaði að æfa CrossFit og hafði áhuga á að fara bæði í lögfræðinám og nám í íþróttafræði. Lögfræðinám varð ofan á en inntökuprófið í íþróttafræði var á sama tíma og hann var að keppa í CrossFit. Hann segist aldrei hafa átt draum um að starfa sem lögmaður en kláraði BA-námið frá Háskólanum í Reykjavík. Sama ár og hann útskrifaðist fæddist frumburðurinn, dóttirin Halldóra María, sem er þrettán ára.
„Þá breyttist allt.“

Vatnið og vindurinn

Guðrún ólst upp við Ægisíðu í Vesturbænum og segir hún að Ægisíðan hafi verið sinn griðarstaður og þar er stutt í sjóinn. „Vatn er mitt element. Ég átti mjög ljúfa og góða æsku. Ég var kannski svolítill einfari þegar ég var lítil en ég átti samt alltaf góða vini. Ég hef alltaf verið pínu öðruvísi en samt mjög þægileg,“ segir hún og kímir. „Ég talaði við vindinn þegar ég var lítil og hélt að ég stjórnaði vindinum. Ég var svolítið mikið með sjálfri mér einhvern veginn og náttúrunni. Ég elskaði sem barn að vera í kringum fiskikallana við Ægisíðu og skoða krabba, ígulker og þang. Ég tengdi aldrei við að vera í prinssesuleikjum með öðrum stelpum. Það var ekki ég. Þegar voru frímínútur skoðaði ég stundum frosin strá.“ Hún tekur fram að hún hafi líka leikið sér með öðrum krökkum í frímínútum og verið oft í fótbolta. „Ég átti auðvelt með að vera í hóp en lét ekkert mikið á mér bera.“ Hún var hlédræg. „Samt var ég alltaf best í öllu,“ segir hún og brosir. „Mér gekk mjög vel í skólanum og var alltaf langbest í íþróttum.“

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

Hana dreymdi um að verða bóndi eða dýralæknir. Hún fór svo á fullu í handboltann og var markmaður og þótti vera ein sú besta við markið hér á landi. „Það var klárlega mikil gjöf finnst mér að vera í íþróttum en það er líka svolítið takmarkandi. Handbolti er hópíþrótt og þá gengur liðið alltaf fyrir og alveg sama hvað gengur á annars staðar þá mætir maður á æfingu og allar keppnir ganga fyrir þannig að annað í lífinu situr svolítið á hakanum eins og ferðalög. Ég hefði þurft að fara erlendis í nám ef ég hefði farið í dýralæknanám og þetta var flækjustig sem ég nennti ekki að takast á við.“

Guðrún er með BA-próf í næringarfræði og tók svo meistarapróf í matvælafræði og vann sem gæðastjóri hjá nokkrum matvælafyrirtækjum. Hún gerðist vegan þegar hún var í meistaranáminu og segir að það hafi ekki verið þægilegt að vinna þess vegna hjá matvælafyrirtæki. Hún fór síðan að bjóða upp á eigin næringarnámskeið og segir hún að um þúsund manns hafi sótt slíkt námskeið á sínum tíma.

Ástin og glíman

Sumar. Árni var tuttugu og tveggja ára og Guðrún var tuttugu og eins árs. Hann var búinn að vera einhleypur í tæpt ár, hafði verið með stelpu á menntaskólaárunum. Einn besti vinur hans síðan í fyrsta bekk átti kærustu og sagði við hann í partíi að hann vissi um stelpu sem hann ætti eftir að fíla. Árni spurði hver hún væri. Vinurinn sagði að hún væri vinkona kærustu sinnar. Árni kíkti í símann sinn og fann Facebook-síðu vinkonunnar og sendi henni vinabeiðni sem hún samþykkti fljótlega. „Svo þorði ég ekki að gera neitt eða segja neitt. Ég var í glasi þegar ég addaði henni á Facebook sem vini.“

Nokkrum vikum síðar fór vinurinn ásamt kærustu sinni, öðru pari og vinkonunni hringinn í kringum landið og bauð Árna og öðrum vini hans að hitta hópinn fyrsta kvöldið og var tjaldað við Skógarfoss. „Ég man hvað ég var stressaður að keyra þangað af því að ég vissi að hún yrði þar. Mér fannst líka vera smá vandræðalegt að hafa addað henni sem vini á Facebook og ekki gert neitt eða sagt neitt. Hún vissi af mér og ég vissi af henni. Svo mætti ég og voru þau búin að tjalda og þetta varð ekkert vandræðalegt. Maður mætti og opnaði bjór og það var ógeðslega gaman og við bara smullum saman um kvöldið. Við vorum eiginlega saman allt kvöldið og ég man að við vorum að leika okkur í kubbi og svo enduðum við Guðrún á að vera að glíma. Ég veit ekki af hverju. Við vorum komin í glas og við vorum að veltast um í grasinu og glímandi allt kvöldið og náðum rosalega vel saman. En það gerðist ekkert. Við kysstumst ekkert.“

Árni segir að allir hafi verið svolítið timbraðir daginn eftir og að Guðrún hafi sagst vera búin með allt áfengið sitt og spurt hvort einhver vildi koma með sér í vínbúðina á Hvolsvelli. Árni sagðist einmitt þurfa að fara í vínbúðina líka og skyldi koma með henni. Skottið á bílnum hans var hins vegar fullt af áfengi að hans sögn. Guðrún hlær við þessa lýsingu. „Ég fór með henni í vínbúðina og við keyptum okkur gin og tónik.“

Það var gist í eina nótt í viðbót við Skógarfoss. Þau voru orðin skotin í hvort öðru. „Það var greinilega einhver neisti á milli okkar. Það var mjög greinilegt.“

Árni fór svo aftur til Reykjavíkur en hópurinn fór hringinn og ætlaði að vera á Ísafirði helgina eftir sem var verslunarmannahelgi. Hann var búinn að kaupa flugmiða en hann hafði ætlað að fara á Þjóðhátíð í Eyjum með vinum sínum. Hann tilkynnti þeim að hann færi ekki með og ákvað í staðinn að taka sénsinn og hitta hópinn fyrir vestan sem ætlaði að keppa í mýrarbolta.

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

Þessa viku sendu þau Guðrún hvort öðru sms af og til.
„Ég var á föstudeginum að vinna hjá Samskipum til klukkan fimm og fór þá heim, henti dóti í bílinn og keyrði beinustu leið til Ísafjarðar, sem tók um sex klukkutíma, bara til að hitta Guðrúnu. Ég man að ég var að detta inn á Ísafjörð rúmlega eitt eftir miðnætti og þau voru búin að vera á einhverju djammi. Ég lagði bílnum, fór inn á einhvern bar þar sem þau voru, gekk að Guðrúnu, dró hana út og kyssti hana. Og við erum búin að vera óaðskiljanleg síðan.“

Þetta var fyrsti kossinn.

Hvað sá hann við Guðrúnu? „Ég skynjaði strax hvað hún var heilbrigð og flott stelpa. Mér fannst ótrúlega aðlaðandi hvað hún var opin og þægilegt að tala við hana. Það skemmdi ekki fyrir hvað hún var í góðu formi og ótrúlega sæt.“

Hvað sá Guðrún við Árna?
„Ég er með „thing“ fyrir rauðhærðum,“ segir hún og hlær.
„Það er ótrúlega heppilegt,“ segir hann.
„Þannig að það kom að góðum notum,“ segir hún og á við rauða hárið. „Hann er náttúrlega svo góður og engir leikir. Hann svaraði um leið sem ég kunni alltaf að meta við Árna. Ég man að ég var að tala um hann við vinkonur mínar og þær sögðu að það sæist langar leiðir og það fyndist á orkunni hans hvað hann er góður maður. Það hefur enginn gert neitt svona fyrir mig - bara sleppt öllum sínum plönum og komið á eftir mér. Þetta sýndi að ég væri málið.“

Hvað er ástin í huga hjónanna?

„Ástin okkar er búin að vera svo ótrúlega margslungin. Við erum búin að vera saman í sextán ár og ég held að við séum búin að ganga í gegnum allt sem fólk gæti mögulega gengið í gegnum í sambandi,“ segir Árni. „Það sem mér finnst einkenna okkar ást er hvað við erum góðir vinir. Við náum vel saman og erum tilbúin til þess að þroskast saman. Við höfum bæði breyst mjög mikið og eins og mörg pör vaxa í sundur eftir ákveðinn tíma þá höfum við náð að vaxa saman. Þannig að við höfum fylgt hvort öðru og átt samtalið saman og viljað einhvern veginn þroskast í sömu átt. Við höfum alltaf verið samstillt og rosa góðir vinir.“

Hvað er ástin í huga Guðrúnar?

„Það sem stendur upp úr í ástinni okkar er hvernig við náum að halda utan um hvort annað. Við höfun gengið í gegnum svo margt saman og ég veit að það er alltaf hann sem kemur og heldur mér. Hann er skilningsríkur og þetta er bara svo djúpur skilningur á minni vitund og veru og ég hef skilning á hans vitund og veru. Þannig að ást er alls konar fyrir öll. En það er þessi djúpi skilningur á einmitt okkar æsku, áföllum, löngunum og draumum og öllu sem er svo umvefjandi.“

Parið byrjaði síðan að búa saman um fjórum mánuðum eftir að þau kynntust. „Það var ekki planað,“ segir Guðrún. „Pabbi minn vann þá hjá Byggingafélagi námsmanna og við sóttum bara um. Hann var búinn að segja við mig að það væri alltaf ársbið en hann togaði þá í einhverja spotta og sagðist í kjölfarið hafa fengið bestu íbúðina fyrir okkur.“

Halldóra María

Ástin bar ávöxt. Þremur árum eftir að Árni og Guðrún voru í glímu við Skógarfoss fæddist frumburður þeirra, dóttirin Halldóra María.

„Ég var rosa spennt fyrir því að verða mamma,“ segir Guðrún. „Mig hafði alltaf dreymt um að verða mamma og sérstaklega ung amma. Það var draumur hjá mér sem ég veit ekki alveg hvaðan kemur. Örugglega af því að amma mín var svo æðisleg og hún dó frekar ung þannig að ég vildi einhvern veginn örugglega fá að upplifa það að vera amma. Þannig að ég var mjög undirbúin þannig séð og spennt fyrir meðgöngunni og allt gekk vel.“

Þriggja barna faðirinn segir að hann hafi verið miklu meira „clueless“ þegar von var á barninu. „Fyrir mér var þetta rökrétt þróun á því hvernig hlutirnir gerast. Maður var orðinn þetta gamall, kominn með maka og næst kæmi barn en ég var engan veginn undirbúinn. Ég er sjálfur yngstur systkina þannig að ég hafði aldrei verið að passa og hjálpa til. Ég man að ég var spenntur en ég var mjög stressaður,“ segir hann með áherslu. „Ég kunni ekki neitt, vissi ekki neitt fannst mér á þessum tíma og ég var ennþá bara ungur íþróttastrákur.“

Guðrún hafði af einhverri ástæðu farið á meðgöngunni að lesa bók um fötluð börn. Svo kom dóttirinn í heiminn og segir Guðrún að nánast frá fyrstu mínútu hafi hún fundið að eitthvað væri að. Stúlkan fékk stórt flogakast sextán tíma gömul og var hún tekin frá foreldrum sínum og send á vökudeildina og hún svæfð og sett í alls konar rannsóknir. Þetta var auðvitað mikið áfall fyrir foreldrana og segir Guðrún að þetta tímabil sé í mikilli móðu.

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

„Ég átti hana í náttúrulegri fæðingu - engin inngrip - og læknirinn hennar vildi meina að eitthvað hefði gerst í fæðingunni. Það tók rosalega á mig að heyra þetta. Tíminn fram að greiningunni var mjög erfiður en þetta var áfall.“

„Þetta var erfitt,“ segir Árni. „Það var ekkert hægt að setjast niður og syrgja eða fara að væla. Þetta bara gerðist og þetta var verkefni sem við fengum en það er meira núna í seinni tíð sem við eigum erfitt með þetta og syrgjum stelpuna sem við fengum ekki. Við sjáum núna jafnaldra okkar eiga unglinga sem eru farnir að passa og fara á böll og þegar við sjáum ófatlaðar þrettán ára stelpur þá stingur það alltaf rosalega í hjartað. Við vorum í fyrstu sett í einhvern hvirfilbyl.“

Svo fékk litla stúlkan að fara heim. Guðrún segir að hún hafi farið í algjört „mömmu-mode“ og þær mæðgur hafi tvær verið í búbblu og að hún hafi ekki hleypt Árna mikið að þeim. „Hann var mikið að æfa og vinna.“ Árni var í fullri vinnu og tók ekkert fæðingarorlof af því að þau höfðu bæði verið að vinna sem verktakar og áttu lítil sem engin réttindi. Hún fór svo að vinna og æfa handbolta en segist hafa séð um allt - allar lyfjagjafir og að svæfa dótturina. „Ég var hennar manneskja.“

Ekki var vitað lengi vel hvað amaði að litlu stúlkunni en hún fékk síðan greiningu tveggja og hálfs árs - greiningu sem er tiltölulega ný í heiminum og kallast „SLC13A5 citrate transporter disorder“ og var fyrsta barnið greint með þennan genasjúkdóm sama ár í Bandaríkjunum. Fram að þeim tíma var vitað að börn með sömu einkenni væru fötluð og með flogaveiki.

Þetta stafar af því að báðir foreldrar eru arfberar sjaldgæfs genagalla. Halldóra María hefði fæðst heilbrigð ef einungis annað þeirra hefði verið arfberi. 25% líkur eru á að barn þeirra fæðist með þennan sjúkdóm. „Við Árni erum bæði arfberar en við erum með eitt gallað gen og það eru 0,003% líkur á að Íslendingar séu arfberar en 0,001% líkur á að útlendingar séu það. Þannig að þetta er aðeins algengara á Íslandi en samt mjög óalgengt.“

Guðrún segir að sítrat-jónagöng í heilanum virki ekki en þau flytja ýmis boðefni í heilanum og það veldur því að hún fær flog, þroskahömlun og getur ekki notað mál til að tjá sig nema að mjög takmörkuðu leyti en hún skilur mikið. „Þannig að þetta er oft mjög frústrerandi fyrir hana. Erfitt.“

Árni segir að þau hafi aldrei upplifaði að Halldóru Maríu líði illa. „Allt sitt líf hefur hún verið fötluð og það tók langan tíma að stilla lyfin hennar almennilega þannig að fyrstu árin var hún að fá stór flog og við hringdum stundum á sjúkrabíl og drífðum okkur upp á spítala. Lengstu flogin hennar stóðu yfir í tvo til þrjá klukkutíma og engin lyf virkuðu og það þurfti bara að svæfa hana. Hún fór margoft á gjörgæslu. Við héldum svo oft að hún væri að deyja og hún var þá orðin blá og við að bíða eftir sjúkrabílnum.“

Halldóra María byrjaði í hefðbundnum leikskóla eins árs og var hún í forgangi af því að hún er þetta fötluð og þarf mikla umönnun. Guðrún segir að það hafi ekkert gengið. Hún fékk reglulega flog og segir móðir hennar að starfsfólk hefðbundins leikskóla hafi ekki haft næga þekkingu eða kunnáttu til þess að sjá um hana þannig að hún fór á Lyngás sem er leikskóli fyrir mjög fötluð börn.

„Þar var hún með krökkum sem bara lágu og þurfti að færa til. Það var líka súrrealískur veruleiki að setja hana þar inn af því að hún var að öðru leyti mjög dugleg. Þar fékk hún hins vegar alls konar stuðningsgræjur sem voru góðar fyrir hana. Svo færðum við hana af þeim leikskóla yfir á annan, venjulegan, þegar við fluttum til mömmu og pabba en þau útbjuggu íbúð fyrir okkur í risinu hjá sér til þess að vera meiri stuðningur af því að þetta var óbærilegt ástand. Það var erfitt að vera á þeim leikskóla en Halldóra María lærði mikið á því og fékk góðar fyrirmyndir og stuðning. Það var mikilvægt.“ Hún var á Lyngás á meðan var verið að stilla lyfin hennar og ná tökum á flogaveikinni og þegar það jafnaði sig svo og hún fékk ekki eins oft flog gat hún farið á hefðbundinn leikskóla. Guðrún segir að Halldóra María sé ótrúlega seig og með mikinn kraft og vilja sem sé leynivopn hennar. „Hún lætur mjög fátt á sig fá.“ „Það sem einkennir hana er hvað hún er dugleg,“ segir faðir hennar. „Hún er ótrúlega þrautseig og hefur alltaf viljað gera allt og við höfum eftir fremsta megni leyft henni að gera allt. Hún hefur viljað klifra upp kastalann á skólalóðinni og við höfum þurft að hjálpa henni en hún er orðin þyngri en mamma sín og þetta er orðið svolítið efitt en við reynum samt.“

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

Fyrst notaði Halldóra María tákn með tali sem hún æfði sig mikið í þegar hún var lítil og segir Árni að um sé að ræða bendingar - einföld tákn. „Þetta var þannig að það vorum bara við sem skildum hana almennilega og vissum hvað hún var að tala um. Hún notar tjáskiptatölvu í dag og er rosalega klár á hana. Hún er ótrúlega montin og þeir tala um það í skólanum, Klettaskóla, að ef það koma gestir í skólann sem þau vilja sýna hvernig á að nota tölvuna þá er Halldóra María alltaf fengin til að sýna og kenna. Það er alltaf kallað í hana. Hún er rosa stolt af því að sýna hvað hún er klár.“

Mikið álag

Þetta hefur verið mikill skóli og hjónin eru lífsreynd. „Við höfum oft grínast með það að það hefði verið „meant to happen“ að við myndum hittast og eignast þetta barn og að þetta væri okkar verkefni í lífinu,“ segir Árni. „Þetta hefur fært okkur ótrúlegustu raunir og uppvötvanir,“ segir Guðrún, „þannig að þetta hefur verið mikil gjöf eins og þetta hefur verið krefjandi. Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg svipað og mörg upplifa sem fá sjúkdóma. Maður fær öðruvísi sýn á lífið.“

Árni segir að það að horfa upp á dóttur sína í flogi og helbláa að bíða eftir sjúkrabíl hafi mótað þau og hafi gert þau næstum því ónæm fyrir ákveðnum hlutum og erfiðleikum. „Stundum tölum við um að „what does not kill you makes you stronger“. Það þarf nú orðið mikið til til að slá okkur út af laginu eða að það sé það erfitt að við ráðum ekki við það.“

Árni talar um að það sé yfir höfuð mjög erfitt að eiga langveikt barn. „Við höfum eiginlega frá því hún fæddist svolítið tekið bara eitt skref í einu. Það var svo mikil óvissa með sjúkdóminn og hvernig hún myndi þroskast, hvað hún gæti og hvað hún gæti ekki þannig að við höfum ekkert leyft okkur að plana neitt fram í tímann. Fólk eignast börn sem eldast og verða unglingar og svo fullorðið fólk sem flytur að heiman. Það er eitthvað sem við höfum aldrei leyft okkur að hugsa út í. Við vitum og vonum að hún geti einhvern tímann lifað sjálfstæðu lífi. Hún er með NPA-þjónustu sem á að gera henni kleift að lifa sjálfstæðu lífi sem eru ótrúlega falleg lög um persónubundna þjónustu en erfið í framkvæmd.“
Alltaf er einhver NPA-aðli með Halldóru Maríu sem þarf sólarhringsþjónstu og er í efsta umönnunarflokki. Um sjö manns til tíu skipta með sér vöktum.

Það að umönnunarðili sé alltaf með Halldóru Maríu þýðir að stundum eru þeir inni á heimilinu og gista þar. Guðrún segir að þetta sé ótrúlega mikið álag. „Það er ekkert alveg „prívasí“.“ Árni bætir við að starfsmannavelta sé mikil og að þeir sem fara í svona störf séu mikið til ungar stelpur sem eru kannski í námi og vinna við þetta í eitt eða tvö ár. „Fólk endist ekkert lengi í þessum störfum þannig að það er ótrúlega erfitt,“ segir hann og bætir Guðrún við að það sé íþyngjandi fyrir Halldóru Maríu þar sem nýr starfsmaður er alltaf á upphafspunkti upp á til dæmis að skilja hana.

Höfuðhöggið

Árið var 2018. Guðrún og Árni höfðu haldið lífi sínu áfram eftir fæðingu Halldóru Maríu og voru virk í íþróttum og var Guðrún á þessum tíma markmaður hjá Stjörnunni. Hún stóð í markinu einn daginn og kom boltinn í áttina til hennar og lenti í höfðinu á henni. Hún datt aftur fyrir sig en stóð upp og kláraði að spila leikinn. Svo þegar leikurinn var búinn féll hún á gólfið þegar leið yfir hana. Hún var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hún fór í myndatöku. „Það sáust einhverjar smábreytingar í hvíta efninu í heilanum og ég var greind 10% öryrki eftir þetta.“

Guðrún var lengi með höfuðverk og átti erfitt með að horfa á skjái og birta fór illa í hana svo hún sat oft ein inni í herbergi með sólgleraugu. Hún var svo greind með „post-concussion syndrome“.

„Ég fæ ennþá oft svimaköst og sé í móðu og á erfitt með að einbeita mér. Svo er skammtímaminnið ekki frábært.“ Hún sagði upp vinnu sinni og skráði sig í nám en það var erfitt að horfa á tölvuskjá eins og kom fram.

„Það var á þessum tíma sem við fórum á fullt og í hart með að fá meiri stuðning fyrir Halldóru Maríu. Og við þurftum að sækja að sveitarfélaginu til að fá stuðning. Það var ekki fyrr en hún var orðin sex ára sem við gátum fyrst farið að fá liðveislu og þá fengum við smáhjálp,“ segir Árni og var í byrjun um að ræða fimm til sex tíma í viku. „Fram að þeim tíma vorum við búin að sjá um hana sjálf og ömmur og afar. Guðrún datt bara út eftir höfuðhöggið og þá tók fólk loksins eftir því hvað þetta var erfitt. Og þá steig ég inn í og fór að sjá meira um Halldóru Maríu. Þetta var mjög erfitt tímabil. Þetta var eitt og hálft ár þar sem Guðrún var svolítið „out“. Þetta breytti öllu lífinu okkar þegar þetta gerðist. Fyrir þennan tíma var Guðrún búin að vera í fullri vinnu, að sjá um Halldóru Maríu og hún var að keppa í handbolta. Hún gerði allt of mikið. Þannig að þetta þvingaði hana til að hægja á og þarna breyttist í raun og veru allt.“

Guðrún gat lítið séð um Halldóru Maríu í kjölfar höfuðhöggsins og þannig var það í níu til tólf mánuði. „Það var risastórt áfall.“

Þetta breytti sjálfsmynd hennar. „Sjálfsmynd mín tengdist því að vera íþróttakona. Og það var líka mikil björg í því að fara á æfingar frá þessu íþyngjandi móðurhlutverki og fá að vera bara stelpa á æfingu og leika með hinum stelpunum, keppa, vera góð og setja sig í gýr. Það var allt tekið frá mér án vilja míns. Maður vill hætta á sínum forsendum. Þegar frá leið áttaði ég mig á því að þetta var líka gjöf. Handboltinn var búinn að vera rosa stór partur af lífinu og þarna fékk ég tækifæri til að stíga inn í önnur áhugamál sem ég hafði eins og jóga sem tók við.“

Árni talar um að einhver andleg vegferð hafi tekið við eftir höfuðhöggið. „Guðrún fór að mæta í jóga af því að hún gat það. Ég man að þú fórst að stunda sjósund og fórst að gera öndunaræfingar. Það hægðist rosalega á tempóinu úr því að vera „hardcore“ handbolti og keppa og allt á húrrandi siglingu.“

Guðrún er ekki á því að hún sé næm, talandi um andlega vegferð. „Mér finnst skrýtið að hún segist ekki vita hvort hún sé næm. Hún er mjög næm,“ segir Árni. „Hún er bara víruð öðruvísi heldur en flest og sérstaklega öðruvísi en ég. Hún er bara svo rosalega tengd sjálfri sér og innsæinu sínu og á sama tíma einnhvern veginn tengd öllum náttúruöflum. Svo fannst mér galið dæmi að hún byrjaði að lesa á meðgöngunni bókina Gleðigjafarnir sem er um fötluð börn. Ég vissi ekki að fötluð börn væru til. Ég pældi ekki í þessu. Það hvarflaði ekki að mér að við gætum eignast fatlað barn. Ég hafði aldrei umgengist fötluð börn þannig séð. Það var eins og Guðrún hafi vitað þetta innra með sér. Mér fannst það ótrúlega magnað.“

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

„Ég átti auðveldara með að finna gleðina í því og gjöfina kannski. Að sjá litlu mómentin hennar verða svo stór,“ segir Guðrún. „Ég náttúrlega syrgi það mjög að eiga ekki heilbrigða stelpu, alveg klárlega, og sjá hana ekki feta þessi spor. Það er mikil núvitund að eiga Halldóru Maríu. Mjög mikil núvitund. Og það er engin flóttaleið frá því að eiga hana.

„Svo hef ég heyrt sögur af Guðrúnu þar sem hún vildi sem barn vera ein úti að leika í náttúrunni við ströndina á meðan kannski aðrir krakkar voru meira í fótbolta eða einhverjum dúkkuleikjum.“

„Ég kom heim með fugla í hendinni,“ segir hún. „Það voru hlutir sem Guðrún gerði sem mér fannst vera skrýtnir.“ Hún hlær. „En allt í lagi; bara fara til dæmis út í náttúruna og dansa nakin. Þetta er bara það sem Guðrún gerir. Mér finnst hún alltaf hafa verið rosa næm, rosa tengd sjálfri sér. Hún hefur alltaf verið rosa ákveðin í því hver hún er og fylgja sínu innsæi. Það stuðaði mig oft á tímabili. Hún var alltaf í sundi eftir að við kynntumst. Hún vildi alltaf vera í vatni. Ég velti fyrir mér hvers vegna.“ Aftur hlær Guðrún. „Hún bauð mér að koma með sér í sund og hún er bara hálfgerð hafmeyja. Hún elskar að vera í vatni. Það fyrsta sem við gerðum eftir að við fluttum í þetta hús var að kaupa og setja upp pott úti í garði af því að hann verður að vera.“

Eins og í fangelsi

Þau hafa ýmislegt lært af því að eiga Halldóru Maríu og nefnir móðir hennar að það hafi styrkt sig í því hvers góð og heil manneskja hún er og þau bæði.

„Ég hef lært svo mikið,“ segir Árni. „Ég hef lært ákveðið æðruleysi og þessa núvitund, að vita ekki hvað framtíðin ber í skauti sér og hversu megnugur maður er og hvað maður getur gert. Við höfum oft horft til baka og spurt okkur hvernig við höfum farið að þessu. Þetta hefur verið mikið þroskastökk fyrir mig. Mér fannst ég eldast um tíu ár fyrsta árið í andlegum þroska við að eignast hana. Ég var tuttugu og fjögurra ára og var settur inn í aðstæður sem maður vissi ekki að væru til. Þetta hefur kennt mér rosalega mikið. Og þetta hefur líka kennt mér að meta það sem ég hef og reyna að sjá það jákvæða. Það er ekki mjög mikið af vandamálum til staðar heldur eru þetta ákveðin verkefni sem manni eru fengin og maður reynir bara að leysa þau eftir bestu getu. Það er svolítið mantra sem hefur verið hjá mér og okkur.“

Hjónin eru spurð hvort þau hafi einhver ráð fyrir foreldra sem eru kannski nýbúin að eignast fatlað barn og eru í sömu sporum og þau voru í upphafi. „Er það ekki ráðið sem við fengum?“ segir Árni. „Við fengum mjög gott ráð frá presti sem var einn af fáum sem við töluðum við á þessum tíma. Við vorum ekki mikið að leita til sálfræðinga en við töluðum við prest sem ráðlagði okkur að lifa lífinu áfram eftir fremsta megni. Ekki setja bara allt á „hold“.“ Guðrún nefnir að presturinn hafi sagt þeim að fara ekki í fórnarlambahlutverk. „Við héldum áfram í námi,“ segir Árni, „og við héldum áfram að vinna og við héldum áfram í okkar keppnisíþróttum. Ég man að á tímabili var Guðrún kannski með Halldóru Maríu uppi á spítala, ég kláraði vinnuna og brunaði þangað og leysti hana af þannig að hún gæti farið á æfingu og komið svo til baka á spítalann. Þetta gekk í mörg ár af því að við tókum ákvörðun um að við ætluðum ekki að láta þetta slá okkur út af laginu og við reyndum að halda áfram að lifa lífinu. Og það er eitthvað sem við höfum gert.“ „Og líka náttúrlega að hugsa um okkur sjálf,“ segir Guðrún. „Þessi fyrstu ár datt ég bara algjörlega í það að sjá um Halldóru Maríu og það eina sem ég gerði þess fyrir utan var að spila handbolta en það var ekkert út fyrir það. Maður kannski festist svolítið í því að reyna þegar stuðningur fékkst að fá meira út úr lífinu en að vera bara mamma fatlaða barnsins.“

Árni talar um að sagt sé að setja eigi fyrst súrefnisgrímu á sjálfan sig og síðan á barnið. Þetta er eitthvað sem þau lærðu. „Ef við erum ekki í góðu andlegu og líkamlegu formi þá getum við ekki verið til staðar fyrir börnin okkar. Þannig að þetta er eitthvað sem við lærðum og tökum mjög alvarlega í dag. Við gerum okkur grein fyrir því að við munum eiga Halldóru Maríu um ókomna tíð og við vitum ekki hvort við lifum hana eða hún lifir okkur. En við vitum bara að þetta er verkefni til lífstíðar. Það er algengt að foreldarar langveikra og fatlaðra barna lendi í kulnun eða örorku og við erum meðvituð um þessa hluti. Ég fór nýlega til læknis og lýsti öllu sem var í gangi og álaginu og hann spurði hvort ég vildi að hann skrifaði fyrir mig upp á veikindavottorð eða hvort ég vildi hætta í vinnunni. Það er ekkert svoleiðis. Maður fær ekki veikindavottorð eða leyfi frá barninu sínu. Það er alltaf í gangi. Þess vegna einmitt setjum við svo mikinn forgang í að rækta okkur. Stundum höfum við fundið fyrir því að fólki finnist það vera skrýtið og finnst við vera sjálfselsk en við höfum bara séð fólk veslast upp og við tókum bara mjög meðvitaða ákvörðun um að við ætluðum ekki að láta það gerast.“

Guðrún segir að það að sjá barnið sitt ekki fá fullt val í eigin lífi verði til þess að hún verði tengdari inn í hvaða val hún hefur sjálf. „Okkur langar til að flytja til útlanda en við höfum ekki gert það af því að það væri ekki jafnauðvelt fyrir okkur eins og suma aðra. En það val sem við höfum í lífinu tökum við mjög alvarlega.“

Árni segir að á löngu tímabili hafi sér liðið eins og hann væri í fangelsi við að eiga svona langveikt og fatlað barn. „Mér leið eins og ég væri ekki frjáls. Ég gat ekki gert það sem ég vildi gera. Við getum ekki tekið skyndiákvörðun og farið til útlanda eða farið í útilegu. Við erum alltaf með ákveðna, fasta rútínu og fasta punkta sem þurfa að vera til staðar og ég man að ég strögglaði mikið með það á tímabili. Mér leið eins og ég væri í búri. Ég upplifði ekki frelsi og fyrir mig er frelsið eitt af mínum grunngildum. Að fá þetta verkefni leiðir til þess að við höfum ekki sömu tækifæri og önnur. Í dag náum við bæði held ég að sjá það að frelsið er náttúrlega fyrst og fremst bara að fá að vera maður sjálfur og lifa í raun frjáls út frá þeim aðstæðum sem maður er í og þeim verkefnum sem manni hefur verið gefið.“

„Þetta er fallega orðað,“ segir Guðrún.

Árni segir að Halldóra María hafi fært þau hjónin saman. „Við höfum gengið í gegnum alls konar tímabil í sambandinu okkar. Við rífumst og höfum öskrað á hvort annað en svo um leið og það kemur eitthvað upp á eða það er lyfjagjöf eða ef eitthvað er í gangi þá erum við bara saman. Þá erum við 100% teymi sem vinnur saman.“

Fóru aðeins í sundur

Árni segir að þessi andlega vegferð Guðrúnar eftir höfuðhöggið hafi verið erfið fyrir þau bæði og samband þeirra.

„Mér leið ekki eins og ég væri að breytast mikið,“ segir hún, „af því að ég var kannski meira að stíga inn í það sem ég vissi að var alltaf. En Árni sá mikla breytingu.“
„Ég fann að það var „Guðrún fyrir höfuðhögg“ og „Guðrún eftir höfuðhögg“. Fyrir mér breyttist bara allt.“

Hann segir að sér hafi fundist persónuleiki hennar breytast. Hvað fannst henni?

„Ég var svaka karakter í handboltanum. Þegar ég fór inn á völlinn þá var ég ákveðin maskína og það litaði náttúrlega inn í allt lífið en eftir höfuðhöggið fór ég úr þeim búning ef það er hægt að orða það þannig. Það var miklu meiri ró yfir mér en á sama tíma ekki jafnmikil útrás fyrir kannski reiðina og sársaukann en á vellinum var ég öskrandi. Eftir það fannst mér ég þurfa að fá tækifæri til þess að öskra og sleppa öllu einhvern veginn. Ég hef þurft að finna farveg fyrir það.“

Árni talar aftur um andlegt ferðalag hennar. „Ég fann bara breytingu á henni þegar hún fór að fara í jóga. Það færðist miklu meiri ró yfir hana og það var það sem hún var að leita í og það var það sem virkaði fyrir hana. Þannig að hún fór meira inn á við. Hún fór meira að spá í aðra hluti eins og andlega hluti á meðan ég var fastur í hraðanum og ég var að keppa í CrossFit og var búinn að sogast inn í þann heim og var að þjálfa og keppa. Það var mikill hraði og aksjón.“

„Við fórum aðeins í sundur að þessu leyti,“ segir Guðrún. „Guðrún fór að fara í kakóseremóníur og að hugleiða og gera öndunaræfingar. Þetta var allt nýtt fyrir mér. Hvað var í gangi? Hvað var að gerast? Þetta er það sem ég velti fyrir mér. Mér fannst eins og hún væri að breytast mikið. Það kom tímabil þegar var smámótþrói í mér og mér fannst þetta vera erfitt. Mér fannst hún vera að einangrast.“
„Ég gerði það náttúrlega,“ segir Guðrún.
„Hún hætti að hitta vinkonur sínar og var ekki að umgangast neitt fólk.“
„Sem gerði það að verkum að þú fékkst samviskubit.“
„Já, þetta var alveg erfitt,“ segir Árni. „Hálfu ári seinna var ég kominn með henni í þetta og þá var ég opnari fyrir þessu og skildi hvað var að gerast. Ég fór svolítið með henni í þetta ferðalag.“

Guðrún segir að það að hafa gengið í gegnum svona lífsreynslu hafi áhrif á ástina og það veit enginn nema þau tvö hvað þau hafa upplifað. „Foreldrar okkar vita ákveðið en svo eru ýmis lög á þessu sem bara við tvö vitum.“

Eins og hvað?

„Næturnar, sorgin og vonirnar,“ segir hún en Halldóra María vaknar stundum nokkrum sinnum á nóttunni. Árni segir að það sé svolítið erfitt að lýsa þessu. „Fólk lendir í ýmsu, það lendir í slysi eða fær sjúkdóm, en að fá svona verkefni saman er eins og að við höfum bæði fengið krabbamein á sama tíma og við þurfum bæði að sjá um það saman. Þetta er bara ákveðið áfall og verkefni sem við fengum jafnt og við þurfum að gera þetta saman.“

Framhjáhald og fæðing

Það hafa skipst á skin og skúrir.

„Það var svo margt í gangi á þessum tíma, á árunum 2018-2020, og það var stormasamt tímabil hjá okkur,“ segir Árni. „Guðrún fékk höfuðböggið og við fórum í alla þessa vegferð að fá meiri stuðning fyrir dóttur okkar.“

Þau reyndu að eignast annað barn á þessum tíma og fóru í tvær tæknifrjóvganir til að koma í veg fyrir að barnið yrði með genasjúkdóminn. Tvisvar sinnum var settur upp fósturvísir en þeir héldu ekki. Guðrún varð svo óvænt ófrísk á náttúrulegan hátt og segir hún að það hafi verið mjög kvíðavaldandi þar sem þau vissu ekki hvort barnið yrði með sama sjúkdóm og Halldóra María. „Þetta var mjög mikill skellur og var ekki planað,“ segir Árni. „Og það voru 25% líkur á að barnið fengi sjúkdóminn.“

Hjónin þurftu að bíða fram á 17. viku til að vita hvort barnið yrði heilbrigt eða ekki.

„Þetta tímabil þangað til við fengum að vita það var eitt erfiðasta tímabil lífs okkar,“ segir Árni en bætir við að ef í ljós hefði komið að barnið yrði með sjúkdóminn hefðu þau þurft að taka ákvörðun um hvort binda ætti enda á meðgönguna eða ekki. „Þetta var viðbjóður. Ógeðslegt tímabil.“

Guðrún segist ekki hafa viljað tengjast barninu sem hún gekk með ef svo skyldi fara að þau myndu ákveða að hún færi í fóstureyðingu. Í ljós kom að það var heilbrigt og kom lítill sonur í heiminn sem byrjaði í fyrsta bekk í haust. Tveimur árum síðar eignaðist hann lítinn bróður en hann kom líka óvænt undir og þurftu foreldranri aftur að bíða eftir því að fá að vita hvort hann yrði með sjúkdóminn eða ekki. Báðir strákarnir eru heilbrigðir en þeir eru báðir arfberar og segir Guðrún að ef þeir eignast konur mun þá þurfa að athuga hvort þær séu arfberar ef hugað verður að barneignum. „Það er seinni tíma vandamál,“ segir Árni.

Þrátt fyrir að það hafi verið léttir að vita að eldra barnið yrði heilbrigt segir Árni að tímabilið frá því þau fengu þær jákvæðu fréttir að barnið yrði heilbrigt og þangað til eldri sonur þeirra kom í heiminn hafi verið mjög erfitt tímabil fyrir sig eins og þegar hefur verið komið inn á.

„Ég gjörsamlega týndi sjálfum mér. Ég var svo stressaður og hræddur við að eignast annað barn verandi búinn að eiga Halldóru Maríu. Ég var svo hræddur um aðallega það að það kæmi nýtt barn og þá náttúrlega myndi Guðrún vera svo mikið að sjá um það og þá færðist öll umönnun og allt álagið varðandi Halldóru Maríu á mig. Þannig að ég var orðinn rosalega stressaður fyrir því sem koma skyldi. Ég hélt fram hjá Guðrúnu á þessu tímabili og það var bara algjör flótti og ég fann að ég var að reyna að flýja raunveruleikann. Ég var bara svo hræddur og týndur. Ég var svo hræddur við að verða aftur pabbi. Og hvað allt var að fara að breytast. Þetta var rétt eftir að Guðrún fékk höfuðhöggið og hún var að breytast og það var svo mikið í gangi.“

Heilbrigður sonurinn kom svo í heiminn. Hjónin fundu að það var eitthvað ójafnvægi í sambandinu og fóru saman til sálfræðings til að fara í pararáðgjöf. Árni segir að sálfræðingurinn hafi greint sig með áfallastreituröskun. „Það var í fyrsta skipti sem ég áttaði mig á því að það væri eitthvað að mér. Eitthvað sem þurfti að vinna í. Ég hafði áður þegar ég stundaði CrossFit grínast með það að ég þyrfti ekkert að fara til sálfræðings af því að ég færi á æfingar í staðinn. En það var í rauninni alger flótti frá tilfinningum og að vinna í mér.“

Hjónin ákváðu að dvelja á Spáni í nokkra mánuði í fæðingarorlofinu og segir Árni að þar hafi sitt andlega ferðalag hafist og að þar hafi hann byrjaði að finna sjálfan sig upp á nýtt. „Ég fór að fylgja Guðrúnu í þessu andlega ferðalagi og fór að vinna meira í sjálfum mér og fór meira að átta mig á því hver ég er og af hverju ég er eins og ég er. Ég fór að hægja á mér og fór í jóga og með Guðrúnu á kakóseremóníur til að tengjast meira hjartanu. Og það færði okkur aftur saman.“

Veira setti heimsbyggðina á annan endann. Heimsfaraldur var staðreynd. Árni smitaðist og veiktist áður en farið var að bjóða upp á bólusetningu og fór hann í einangrun á hóteli úti í bæ. Sonur þeirra var þá þriggja vikna. „Sonur okkar, sem er núna sex ára, var yngsta barnið á Íslandi til þess að fá Covid.“ Guðrún fékk líka Covid og í kjölfarið fór Árni heim og voru þau öll saman í einangrun.

„Þetta var klikkað tímabil þetta Covid-dæmi. Ég veiktist ekkert mikið, ég var í besta formi lífs mins og varð kvefaður. Svo kláraði ég einangrunina og ætlaði að fara aftur að stað og æfa en þá fann ég að það var eitthvað „off“. Þá gerðist eitthvað með hjartað í mér en púlsinn rauk upp við minnstu áreynslu og hækkaði óeðlilega mikið. Ég var settur á lyf til að hægja á honum og fór aldrei aftur í CrossFit eftir að hafa fengið Covid.“

Guðrún segir að þetta hafi verið sjálfsmyndarkrísa fyrir hann eins og hún lenti í varðandi handboltann eftir að hún fékk höfuðhöggið.

Fyrirgefning

Árni sagði Guðrúnu frá framhjáhaldinu eftir Spánardvölina og fann hann fyrir létti að hafa sagt frá.

„Þá vorum við búin að vinna svo mikla vinnu,“ segir hann, „og við vorum búin að þroskast svo mikið og fara í millitíðinni í sálfræðimeðferð og það ferðalag. Við hringdum í sálfræðinginn okkar sem hitti okkur akút daginn eftir á fundi og við fórum í gegnum þetta saman. Við gátum talað um þetta og skilið þetta. Við skildum af hverju ég hafði gert þetta - ég hafði verið hræddur og verið að flýja. Eins og ég sagði hafði þetta verið rosalega erfitt tímabil út af öllu sem hafði verið í gangi með Halldóru Maríu og óvissuna. Þannig að við gátum horft á þetta með þroskuðum augum og við unnum úr þessu. Og þetta færði okkur nær hvort öðru.“

Hvað segir Guðrún um þetta áfall sem framhjáhaldið var á meðan hún gekk með barn þeirra? „Þetta var áfall en á sama tími vissi ég og hann kom því fallega til skila að þetta hafði ekkert með mig eða okkur að gera heldur var þetta hans trauma, flótti og hræðsla.“
Þögn.
„Ég tók þessu aldrei persónulega.“
Þögn.
„Svo er ég öðruvísi heldur en flest,“ segir hún og kímir. „Og ég er líka mjög skilningsrík. Það var mjög gott að vinna þetta saman og hann gaf mér mjög mikið svigrúm til þess að vinna með mínar tilfinningar. Hann var mjög flinkur í því að halda rými fyrir mig og leyfa mér að vinna úr mínum tilfinningum þegar þetta kom upp og þegar ég átti erfitt í kringum þetta.“
Hún grét þó mikið fyrst á eftir og var mjög reið og hún skildi ekki hvers vegna Árni hafði haldið fram hjá henni. „Ég fór alveg í smá histeríu í smátíma en svo var einmitt mikil hjálp í því að að sálfræðingurinn okkar greip okkur strax daginn eftir.“

Árni segir að það hafi verið gott að þau gátu unnið í þessu með sálfræðingnum sem gat gefið þeim ráðleggingar og leiðbeint þeim í gegnum þetta. „Okkur var sagt að Guðrún ætti fullan rétt á að ræða um þetta þegar hún vildi gera það og það mætti koma upp og það gerðist oft. Við töluðum saman um þetta.“

Guðrún segir að það hafi verið gott hve langur tími var liðinn frá framhjáhaldinu og þangað til það komst upp eða um eitt og hálft ár. „Þá var ég búin að finna að hann var búinn að velja mig, okkar líf og okkar sameiningu. Ég var búin að sjá mikla breytingu á honum og finna að hann var búinn að vinna mikla andlega vinnu. Þannig að það var auðvelt að trúa og treysta því að þetta væri bara þetta tilfelli og að hann væri algjörlega mættur til leiks með okkar fjölskyldu.“

Hvað með traustið eftir þetta og óttann um að svona geti gerst aftur?

„Það hefur aldrei hvarflað að mér að svona myndi gerast aftur,“ segir Guðrún. Hún segir að framhjáhaldið sitji ekki í sér og að það skipti máli sú ábyrgð sem Árni axlaði loks þegar hún vissi af þessu og hversu hreinskilinn hann var og hún talar líka um þann skilning sem hann sýndi henni. „Það sem breyttist líka var að Árni leyfði mér að elska sig dýpra eftir að þetta kom upp.“

Árni segist hafa verið búinn að vera með nagandi samviskubit. „Ég var búinn að vera hræddur og mér leið eins og drullusokki og mér fannst ég vera aumingi. Það var ástæða fyrir því að þetta gerðist. Það var ekki út af því að ég væri bara illa innrættur drullusokkur. Það var ákveðið sár þarna og ákveðin hræðsla og ákveðinn flótti sem leiddi til þess að ég gerði ákveðna hluti sem mig langaði ekkert til þess að gera. Ég er ekki slæm manneskja og ég er ekki skíthæll þótt ég hafi gert hluti sem særðu Guðrúnu. Þetta leiddi líka til þess að ég lærði að elska sjálfan mig og ég gat fyrirgefið sjálfum mér og Guðrún fyrirgaf mér. Þannig að þetta er eitt af þeim verkefnum sem okkur var fengið.“

Árni sagði áður að sálfræðingurinn hafi fyrir nokkrum árum greint hann með áfallastreituröskum. Fyrir tveimur árum endaði hann uppi á bráðamóttöku. Hann segist hafa haldið að hann væri að deyja. „Það var búið að vera mikið álag á okkur, mikið í gangi og ég sat inni í bíl með Guðrúnu og fann að ég var að fjara út. Ég var að detta út. Svo endaði það á því að ég gat varla talað og ég gat varla hreyft mig og ég bað Guðrúnu um að keyra mig upp á bráðamóttöku. Mér var ekið þangað inn í hjólastól og var hálfdottandi og settur í alls konar próf og allt kom eðlilega út. Þá var þetta álag og streita. Hvað á maður að gera? Lífið heldur áfram. Maður reynir að hægja á sér og hlúa að sér en við erum ótrúlega virk. Við viljum gera margt og erum mjög drífandi og miklar keppnismanneskjur. Þetta var ákveðið „reality check“. Maður getur ekki gert allt. Þetta leiddi til þess að ég þurfti að hægja aðeins á mér og aðlaga mig.“

Þrjú í sambandi

Hjónin eru opin um einkalíf sitt. Galopin. Og þau hafa í gegnum árin verið opin með það að þau eru í opnu sambandi og þau eru með podkast þar sem þau ræða um allt og þar á meðal það að vera í opnu sambandi.

Hvers vegna opið samband?

„Við fórum í gegnum svo mikla andlega vinnu eftir höfuðhöggið, svo framhjáhaldið og svo barneignir,“ segir Árni, „og þetta var snjóbolti sem byrjaði að rúlla og við vorum komin á þann stað þar sem við vorum bara ótrúlega góð. Sambandið okkar var svo gott. Við vorum svo ástfangin og svo opin að við fórum einhvern veginn að springa úr ást. Við hugsuðum með okkur hvað tæki við. Af hverju að takmarka þessa ást bara við okkur tvö?“
„Okkur fannst svo fallegt að elska hvort annað,“ segir Guðrún.

„Þegar fólk er búið að vera saman í langan tíma þá verður það forvitið,“ segir Árni, „og fer kannski að tala um einhverjar fantasíur og langanir. Fyrsta skrefið okkar var að fara á kynlífsklúbb erlendis. Það opnaði ákveðnar dyr. Þar sáum við hluti sem við höfðum aldrei séð áður. Þarna var hamingjusamlega gift fólk að stunda kynlíf með öðrum.“ Hjónin horfðu á aðra stunda kynlíf og létu það nægja. „Þetta opnaði á ákveðna sýn fyrir okkur. Þá fórum við að heyra um „swing“ og vissum ekkert hvað það var áður. Þegar við vorum komin inn í þennan andlega heim þar sem sem við vorum að fara í kakóseremóníur og hugleiðslu þá fórum við að heyra af fólki sem er pólí og í opnum samböndum og allt í einu áttum við fullt af vinum sem voru í opnum samböndum.“

„Og það var „the highest form of love“,“ segir Guðrún. „Það er flott að vera í opnu sambandi og við fórum að heyra af alls konar öðruvísi hlutum - að það væru fleiri sambandsform til en bara hið heðfbundna sambandsform sem flest þekkja. Við urðum mjög forvitin og fórum inn í tímabil þar sem við vorum að „explora“ alls konar sem við höfðum aldrei gert áður - með öðrum og bara með sjálf okkur. Síðan prófuðum við hluti sem mörg pör prófa sem var að fara í „threesome“ og við fórum á fleiri kynlífsklúbba erlendis. Við komumst að því að við vorum ekkert endilega spennt fyrir að vera með öðru fólki á slíkum klúbbum en okkur fannst gaman að sjá og láta aðra horfa á okkur,“ segir Árni en hjónin stunduðu kynlíf í slíkum klúbbum á meðan aðrir fylgdust með þeim. „Það fylgir þessu ákveðið frelsi og það er ákveðin kynorka í gangi sem okkur fannst vera spennandi. Við erum búin að vera saman í sextán ár og kynlífið hefur alltaf verið stór partur af okkar sambandi. Við höfum alltaf stundað mikið og gott kynlíf og þarna opnaðist nýr heimur sem gerði okkur forvitin.“

Hjónin hittu árið 2024 par á kynlífsklúbbi í Bandaríkjunum og segjast þau hafa tengst konunni mikið og varð hún góð vinkona þeirra en hún og maðurinn voru í opnu sambandi. Það endaði með því að þau fóru að deita hana saman. Þau voru því á tímabili þrjú í sambandi. „Þetta var rosalega mikið „trial and error“,“ segir Árni. „Það opnaðist nýr heimur sem var mjög spennandi og forvitnilegur. Við prufuðum alls konar og prófuðum okkur áfram. Við fundum að fólk var farið að taka eftir þessu og fólk var farið að slúðra og okkur fannst það vera óþægilegt. Við höfðum verið í fjölmiðlum út af dóttur okkar og ég út af CrossFit og Guðrún út af handboltanum og mörg þekktu okkur þannig séð. Þá byrjuðum við með þetta podkast sem heitir Tabú og við ákváðum að ræða um þessa hluti af því að við fundum hvað fólk í kringum okkur var sjúklega forvitið og fannst þetta vera spennandi. Við erum mikið keppnisfólk og við fórum alla leið og byrjuðum að opna okkur um alla þessa hluti og fræða fólk líka.“

Guðrún segir að þau hafi fengið mikil viðbrögð og þá sérstaklega frá pörum.

Guðrún Ósk og Árni
Mynd: Golli

Kynsjúkdómatékk

Það er að ýmsu að hyggja þegar kemur að kynlífi og eitt af því er öruggt kynlíf og kynsjúkdómar. Árni segir að þetta sé eitthvað sem þau hjónin hafi ekkert spáð í áður en þau fóru að vera með öðru fólki og nefnir Árni smokkanotkun. „Að byrja að nota smokk allt í einu eftir fimmtán ár. Fólk sem er í þessum lífsstíl er svo meðvitað um þetta og fer reglulega í kynsjúkdómatékk.

Það halda mörg að við séum að sofa hjá pörum annan hvern dag og með fullt af fólki en það er alls ekki raunin. Við fórum ekkert út í þetta sem einhverjir vitleysingar. Við erum orðin fullorðin. Við erum þroskuð. Þannig að við erum meðvituð um þessa hluti. Við lærum líka hratt og við lærum líka að velja vel. Þannig að við erum á þeim stað í dag að við erum aldrei með neinu fólki nema fólki sem við treystum og eru eiginlega orðið vinir okkar.“
Í fyrsta sinn sem þau fóru í „threesome“ var um samkynhneigðan mann að ræða.
Áður kom fram að hjónin hafa allt tíð stundað mikið og gott kynlíf. Hvað fá þau út úr því að vera með fleiri í rúminu?
„Það kemur önnur dínamík,“ segir Guðrún.
„Það fylgir þessu ákveðin spenna,“ segir Árni. „Þetta er ákveðin forvitni og þetta getur líka verið ótrúlega skemmtilegt. Maður á góða vini og það er gaman að hitta þá og gera skemmtilega hluti. Og það er líka gaman að stunda kynlíf og leika sér. Þannig að þetta er skemmtilegt og gefandi og svo getur þetta verið rosalega djúpt af því að maður er náttúrlega að fá aðra manneskju inn í ákveðna dínamík sem er okkar þannig að það getur myndast rosaleg tenging sem getur gert þetta svo ótrúlega fallegt.“

Guðrún segir að allar upplifanir þeirra hafi verið mjög jákvæðar en að vissulega hafi stundum komið upp ákveðið óöryggi eða afbrýðisemi en þau hafa þá talað um það. Guðrún nefnir þegar önnur kona hefur sofnað í fanginu á Árna. Hún segir að sér finnist ekki þægilegt að sofna þannig en að samt langi sig til að upplifa það.

„Ég myndi segja að allar tilfinningar sem hafa mögulega getað komið upp hafi gert það,“ segir Árni.
„Það er mikill skóli í því,“ segir eiginkona hans.
„Við segjum við börnin okkar að það sé allt í lagi að vera reiður,“ segir Árni. „Það er allt í lagi að gráta. Það er allt í lagi að sýna tilfinningar. Allar tilfinningar eiga rétt á sér og við segjum það líka við hvort annað. Þannig að við höfum verið afbrýðisöm. Við höfum verið reið. En aldrei á neinum tímapunkti höfum við séð eftir einhverju eða viljað fara til baka. Þetta er búið að vera svo þroskandi.“
„Fyrir einhverja er kynlíf kannski ekki það skemmtilegasta sem þau gera í lífinu,“ segir Guðrún, „en fyrir okkur er það það.“
Burtséð frá fleirum í rúminu þá segir Guðrún að þau hjónin stundi kynlíf nánast á hverjum degi og stundum oftar en einu sinni á dag.
„Ef við stundum ekki kynlíf kannski í tvo daga þá er eitthvað „off“,“ segir Árni. Hann talar um að kynlíf geti haft góð áhrif á tilfinningar og líkamann. „Ef álagið er mikið og allt í gangi þá myndu rosalega mörg ekki endilega stunda kynlíf en við veljum að gera það.“
„Það er eins og þerapía,“ segir Guðrún.
„Það færir okkur saman, okkur líður vel og það er gott,“ segir eiginmaður hennar.

Pan sexual

Árni stundaði tennis af kappi á sínum yngri árum og nefnir hann að karlkyns uppáhaldstennisleikararnir hafi ekki verið þeir sem voru bestir heldur þeir sem voru sætir. Þá pældi hann í því hvað Páll Óskar væri sætur. Eftir að þau Guðrún opnuðu samband sitt kom hann út sem tvíkynhneigður.

„Það var ótrúlega skrýtið,“ segir hann. „Þetta er partur af þessu ferðalagi sem við fórum í gegnum þegar við vorum að læra betur inn á okkur sjálf og ég áttaði mig á því að ég heillaðist líka af karlmönnum. Síðan er þetta búið að breytast aðeins og ég held að við lítum á okkur bæði sem pan sexual. Ég hrífst ekkert endilega af körlum eða konum heldur er þetta ákveðin orka - í örfáum tilfellum er það karlorka sem heillar en yfirleitt er það kvenorka.“

Guðrún hafði ekki hugsað út í að vera með konu áður en þau opnuðu sambandið en hún segir að það hafi verið fallegt að vera með konum í þessum aðstæðum.
Hjónin eru spurð hvort þau séu ekki að skemma neitt sín á mili sem hjón með því að vera með öðrum.

„Nei,“ segir Árni. „Við erum búin að átta okkur á því að þetta hefðbundna form, karl og kona og ekkert annað, er að okkar mati hugmyndafræði sem á ekki við okkur - eða kannski frekar sú hugmynd að það sé bara eitt rétt og hefðbundið sambandsform. Við dæmum alls ekki þau sem kjósa að lifa þannig. Fyrir okkur snýst þetta frekar um að við erum tveir einstaklingar sem kjósum að lifa lífinu saman. Ég á ekki Guðrúnu og hún á ekki mig.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þórarni finnst ákveðin mismunun vera af hinu góða
Peningar

Þórarni finnst ákveðin mismunun vera af hinu góða

Persónuleg verðlagning færist í aukana
Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna
Innlent

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna

Ofbeldisskimun grunnskólabarna að hefjast
Innlent

Ofbeldisskimun grunnskólabarna að hefjast

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“
Myndband
Heimur

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum
Innlent

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist
Heimur

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Fólk

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Viðtal
Fólk

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg

Hjónin Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir féllu fyrir hvort öðru við Skógarfoss á sumarkvöldi þá rétt um tvítugt. Frumburðurinn er Halldóra María sem er með arfgengan genasjúkdóm og er fötluð vegna hans. Svo eiga þau tvo yngri syni sem eru arfberar. Hjónin hafa gengið í gegnum hæðir og lægðir í lífinu og má nefna áfallastreituröskun Árna vegna álags og streitu og þá fékk Guðrún handbolta í höfuðið sem breytti öllu.
Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús
Myndir
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu
Myndir
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun
Fólk

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í
Myndir
Fólk

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í

Sex einföld ráð sem geta bætt nætursvefninn
Fólk

Sex einföld ráð sem geta bætt nætursvefninn

Loka auglýsingu