
Það kemur fram hjá Veðurstofu að norðaustlægar áttir muni ráða ríkjum á landinu í dag. Stinningsgola eða kaldi. Á sumum stöðum verður strekkingur norðvestantil og einnig við suðausturströndina.
Lægð er fremur skammt norðaustur af Færeyjum, frá lægðinni liggur lægðardrag til vesturs.
Það verður rigning og súld norðaustan- og austanlands, en að öðru leyti verður skýjað sem og þurrt og hiti á bilinu 7 til 16 stig. Svalast austantil.
Það mun draga úr vætu á morgun fyrir austan. Búast má við rigningu á Suður- og Vesturlandi og hiti breytist lítið sem ekkert.
Það verða því litlar breytingar á stöðu veðrakerfa fram yfir miðja þessa viku. Má því búast við svipuðu veðri sem einkennist af austlægum áttum og víða nokkurri vætu.
Komment