
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Mynd: Víkingur
Lokað verður fyrir umferð austur Miklubraut frá kl. 20-21 í kvöld, frá aðrein að Skeiðarvogsbrú en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu.
Á þeim tíma verður umferð austur götuna beint upp á Skeiðarvogsbrú/Réttarholtsveg. Akreinum frá Réttarholtsvegi og Skeiðarvogi, sem liggja að Miklubraut til austurs, verður sömuleiðis lokað á sama tíma.
Lokunin er tilkomin vegna rannsóknar máls hjá lögreglu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment