
Maldíveyjar hófu í dag að innleiða reykingabann fyrir alla sem fæddir eru eftir janúar 2007 og verða þannig eina þjóðin í heiminum með kynslóðabundið tóbaksbann, að því er heilbrigðisráðuneytið greindi frá.
Aðgerðin, sem forsetinn Mohamed Muizzu hóf fyrr á þessu ári og tók gildi 1. nóvember, mun „vernda lýðheilsu og stuðla að tóbakslausri kynslóð“, sagði ráðuneytið.
„Samkvæmt nýja ákvæðinu er einstaklingum sem fæddir eru 1. janúar 2007 eða síðar bannað að kaupa, nota eða fá seldar tóbaksvörur innan Maldíveyja,“ segir enn fremur „Bannið nær til allra tegunda tóbaks, og verslunareigendum ber að staðfesta aldur áður en sala fer fram.“
Aðgerðin gildir einnig um gesti í eyríkinu, sem samanstendur af 1.191 litlum kóraleyjum sem eru þekktar fyrir lúxusferðamennsku.
Ráðuneytið sagði að það viðhaldi einnig víðtæku banni við innflutningi, sölu, dreifingu, vörslu og notkun rafrettna og rafsígarettna, sem gildir um alla einstaklinga, óháð aldri.
Sala tóbaksvöru til ólögráða einstaklings varðar sekt upp á 3.200 bandaríkjadali, en notkun rafrettna varðar sekt upp á 320 bandaríkjadali.
Svipað kynslóðabundið bann sem lagt hefur verið til í Bretlandi er enn í löggjafarferli, en Nýja-Sjáland, fyrsta landið til að setja slíkt bann við reykingum, felldi það úr gildi í nóvember 2023, innan við ári eftir að það var tekið upp.
Komment