
Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, gaf sjaldgæfa innsýn í fjölskyldulíf sitt þegar hún deildi myndböndum á Instagram frá páskahaldi með börnum sínum, Boga (Archie) prins og Lísabetu Díönu (Lilibet Diana) prinsessu.
Í myndböndunum má sjá börnin taka þátt í páskaeggjaleit, leika sér með hundunum og hjálpa til við að safna eggjum, auk þess sem Meghan sýnir frá daglegum störfum eins og að gefa hænunum. Lísabeta var klædd bleikum kjól og með kanínueyru, en Bogi sást meðal annars skreyta eigið páskaegg.
„Gleðilega páska!“ skrifaði Meghan við færsluna. Harrý prins, hertogi af Sussex, sást ekki í myndskeiðunum.
Á meðan söfnuðust aðrir meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar saman í Windsor á páskadag, en páskahald Sussex-hjónanna var með allt öðru sniði.
Gert er ráð fyrir að Harry snúi aftur til Bretlands í sumar til að taka þátt í viðburðum tengdum verndarsamtökum sínum og öðrum verkefnum. Þar á meðal er viðburður sem markar eitt ár í Invictus-leikana sem haldnir verða í Birmingham árið 2027, auk verkefna fyrir góðgerðarsamtökin WellChild.
Samkvæmt fréttum hefur Harrý áhuga á að heimsækja England með Meghan og börnunum tveimur til að verja tíma með fjölskyldu sinni, en aðeins ef fullnægjandi öryggisráðstafanir verða tryggðar.
Heimildir herma að hann vonist eftir boði frá konungi til að heimsækja Sandringham-setrið. Eftir að Sussex-hjónin drógu sig frá störfum fyrir konungsfjölskylduna fyrir sex árum var öryggi þeirra lækkað.
Samkvæmt heimildarmanni vill Harrý gjarnan hitta föður sinn og eyða meiri tíma með honum, ef tækifæri gefst.
Á sama tíma er nefnd á vegum breska innanríkisráðuneytisins að vinna að nýju áhættumati varðandi öryggi hertogans af Sussex, en þeirri vinnu er enn ólokið.

Komment