1
Innlent

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

2
Fólk

Hallgrími barst gjafapoki úr óvæntri átt

3
Fólk

Sonur Önnu hrekkti tengdaföður sinn á Tenerife

4
Fólk

Geri veldur reiði innan Spice Girls

5
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

6
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

7
Heimur

„Ísrael vill ekki gera Gretu að píslarvotti“

8
Heimur

Greta Thunberg og félagar nálgast Gaza-ströndina

9
Heimur

Meint laundóttir Pútíns starfar á listastöfnum í París sem sýna verk gegn stríði

10
Innlent

Æsilegur eltingarleikur lögreglu endaði með handtöku

Til baka

Meint laundóttir Pútíns starfar á listastöfnum í París sem sýna verk gegn stríði

Móðir hennar sætir viðskiptaþvingunum í Bretlandi.

Dóttir Putins
Elizaveta KrivonogikhMeint laundóttir Pútíns þykir sláandi lík föður sínum.

Elizaveta Krivonogikh, sem sögð er vera leynileg dóttir rússneska forsetans Vladímírs Pútíns, starfar sem stjórnandi í tveimur listasöfnum í París sem þekkt eru fyrir að sýna listaverk gegn stríði. Þetta greindi rússneska listakonan Nastya Rodionova frá á fimmtudag. Rodionova er rithöfundur og listakona fædd í Moskvu sem flúði til Frakklands og fékk þar pólitískt hæli árið 2022 eftir innrás Rússlands í Úkraínu.

Í færslu á Facebook sagðist Rodionova hafa heyrt „sögusagnir“ um að Krivonogikh ynni hjá listasöfnunum Studio Albatros og L Galerie, sem rekin eru af félaginu L Association og hafa bæði sýnt verk rússneskra og úkraínskra listamanna sem gagnrýna stríðið. Ein af vinkonum hennar, einnig listakona, staðfesti að hún þekkti stjórnanda safnanna, unga konu að nafni „Liza“, stytting á Elizaveta, sem passaði við lýsingu á Krivonogikh.

Krivonogikh var fyrst tengd við Pútín árið 2020 í rannsókn blaðamanna hjá sjálfstæða miðlinum Proekt, þar sem kom fram að móðir hennar, Svetlana Krivonogikh, væri milljónamæringur sem ætti auðævi sín að þakka nánu sambandi við Pútín. Í sömu rannsókn var sagt að dóttirin, fædd árið 2003, væri ótrúlega lík Pútín, sem kveikti sögusagnir um að hann ætti hana.

Pútín og meint dóttir hans
Hin meintu feðginÞau þykja sláandi lík.

Krivonogikh var síðar kölluð „Luiza Rozova“, en Kreml vék þeim sögusögnum til hliðar og kallaði þær „órökstuddar og óáreiðanlegar“.

Luiza Rozova tók þó síðar þátt í viðtali við rússneska GQ og leyfði ljósmyndum af sér að birtast með dulið andlit. Þegar blaðamaður spurði hvort hún teldi sig líkjast forsetanum svaraði hún: „Margir líta út eins og herra Pútín.“

Í færslu sinni á Facebook segir Rodionova að hún hafi fundað með Dmitri Dolinski, forseta L Association, og spurt hann út í þessa „Lizu“. Dolinski sagðist ekki spyrja starfsfólk sitt um ættir þeirra og bætti við: „Börn bera ekki ábyrgð á foreldrum sínum.“ Hann sagði eftirnafn hennar væri „Rudnova“.

Úkraínska fjölmiðla greindu frá því í nóvember 2024 að Elizaveta Rudnova væri skráð í nám í menningar- og listastjórnun við einkaháskólann ICART í París. Rannsóknarmiðillinn Agentstvo, tengdur Proekt, fékk í hendur flugskjöl sem sýndu að „Elizaveta Olegovna Rudnova“, með sama fæðingardag og Krivonogikh, hafði ferðast undir þessu nafni.

Sama miðill greindi frá því að nafnið „Rudnova“ væri dregið af nafni Oleg Rudnov, æskuvinar Pútíns og viðskiptamanns sem lést 2015. Í fyrri rannsókn tengdi Proekt fasteignir Svetlönu Krivonogikh við nafn Rudnovs.

Árið 2023 lagði Bretland efnahagsþvinganir á Svetlönu Krivonogikh og lýsti henni sem hluthafa í Bank Rossiya og National Media Group, fyrirtækjum sem „stuðla kerfisbundið að réttlætingu á árásarstríði Rússa í Úkraínu“.

Dolinski staðfesti síðar við fjölmiðilinn Meduza að Liza Rudnova væri dóttir Svetlönu Krivonogikh og bætti við að hún „líktist mjög“ dóttur Pútíns sem áður hefur verið mynduð. Hann sagði einnig að hún væri í námi í París og væri í starfsnámi sem hluti af prógramminu. Heimildarmaður innan rússnesks listasamfélags í París sagði að fleiri nemendur frá sama skóla hefðu aðstoðað við að halda sýningar hjá L Galerie.

Rodionova sagði í samtali við Meduza að hún hafi ákveðið að opinbera upplýsingarnar því hún telur mikilvægt að listamenn í París viti hverjir standa að sýningarrýmunum og geti tekið upplýsta ákvörðun um hvort þeir vilji sýna þar. Hún sagði að fjölskyldutengsl Rudnovu við Pútín væru ekki opinberlega staðfest, en að móðir hennar væri í hluthafahópi stórra rússneskra fyrirtækja og væri undir efnahagsþvingunum.

„Þegar ég heyrði þessa sögusögn fannst mér hún alveg ótrúleg,“ sagði Rodionova. „Ég hafði í hyggju að sýna verk mín hjá þessum söfnum, en ég hefði ekki samþykkt það ef ég hefði vitað að þau væru, jafnvel óbeint, tengd fjölskyldu einhvers sem hagnaðist á kúgunarstjórn. Svona upplýsingar gera okkur listamenn berskjaldaða, og mér finnst ábyrgðarlaust að þegja yfir þeim.“

Rodionova sagði að bæði söfnin væru afar mikilvæg fyrir rússneska listasenuna í Frakklandi og að nær öll verkefni þar hafi miðlað stríðsandstöðu. Þar hafi bæði rússneskir og úkraínskir listamenn sýnt verk sín.

„Þau sýna alls konar rússneska list, allt frá kirkjulandslagi til róttækrar samtímalistar,“ sagði heimildarmaður sem þekkir vel til safnanna.

„Við höfum mjög skýra stefnu og höfum haldið okkur við hana,“ sagði Dolinski. „Á síðustu tveimur árum höfum við haldið um 200 sýningar, og helmingur þeirra voru með rússneskum listamönnum í útlegð.“

Tveir heimildarmenn úr listalífi Parísar sögðu við Meduza að það væri „alþekkt“ að dóttir Svetlönu Krivonogikh hefði stundað nám við ICART og væri „virk í listasenunni.“ „Flestir vita að það er til einhver Liza, en enginn gerir mikið úr því,“ sagði annar heimildarmaðurinn.

Dmitri Dolinski sagði að sögusagnir um að dóttir Krivonogikh hefði haslað sér völl í listalífi Parísar hafi byrjað að ganga meðal listamanna fyrir um „sex til sjö mánuðum síðan.“ Þegar hann réði Rudnovu í október 2024 sagðist hann „ekki hafa velt því neitt sérstaklega fyrir sér.“

„Ég tel að börn beri ekki ábyrgð á foreldrum sínum. Jafnvel þótt við gefum okkur að [Elizaveta sé í raun dóttir Pútíns], þó engin raunveruleg sönnun liggi fyrir, hvað þá? Eigum við að taka þau öll af lífi, eins og Romanov-fjölskylduna? Átti ég að segja við hana: „Vegna þess hver móðir þín er, get ég ekki ráðið þig“? Við ráðum ekki mæður fólks,” sagði Dolinski. Hann bætti við að hann gæti lent í lögfræðilegum vandræðum sem vinnuveitandi ef hann hafnaði umsókn á slíkum forsendum.

Samkvæmt heimildarmönnum Meduzu lýsa margir í listasamfélagi Parísar Rudnovu sem „kurteisri manneskju“, „frábærum samstarfsmanni“ og „hæfileikaríkri ungrar konu.“ Dolinski sagðist hafa „engar áhyggjur“ af frammistöðu hennar í starfi.

Hann sagði einnig að hann sæi engin siðferðileg vandamál við að hún starfaði við galleríið. Rudnova hafi ekki búið í Rússlandi í mörg ár og enginn listamanna sem hann vinni með hafi haft ástæðu til að ætla að hún „styðji rússnesk stjórnvöld eða stríðið.“

„Hún bjó með móður sinni og þekkir ekki föður sinn,“ sagði hann. Í samtali við Meduza bætti Dolinski við að áður en færsla Rodionovu birtist hefði enginn listamanna sem unnið hafi með L Galerie spurt neitt út í fjölskyldubakgrunn Rudnovu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Madleen
Heimur

„Ísraelski herinn er hér núna, hringið viðvörunarbjöllunum“

Gallant
Heimur

Ísraelar hyggjast stöðva bát aðgerðarsinnanna í nótt

Anna Kristjánsdóttir
Fólk

Sonur Önnu hrekkti tengdaföður sinn á Tenerife

Greta Thunberg
Heimur

„Ísrael vill ekki gera Gretu að píslarvotti“

Miguel Uribe
Heimur

Forsetaframbjóðandi gekkst undir vel heppnaða skurðaðgerð eftir skotárás

Geri
Fólk

Geri veldur reiði innan Spice Girls

Kerti
Innlent

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

Hallgrímur Helgason
Fólk

Hallgrími barst gjafapoki úr óvæntri átt

Loka auglýsingu