
Komið er á daginn að mun fleiri konur en karlar eru með háskólamenntun hér á landi.
Eru þetta enn einar góðu fréttirnar er varða konur í íslensku samfélagi.
Í dag er kona forseti Íslands, það er kona sem er biskup Íslands, það er kona sem er forseti Alþingis, háskólarektor er kona, þrjár konur eru leiðtogar ríkisstjórnarinnar og nýlega féll svo enn eitt karlavígið - en þá var kona kjörin formaður íþróttafréttamanna.
Og svona mætti lengja telja, sem betur fer.
Samkvæmt yfirliti Hagstofunnar um árið í fyrra þá eru 40 prósent landsmanna, 16-74 ára, háskólamenntuð.
En stóru fréttirnar eru þær að mun hærra hlutfall kvenna er með háskólamenntun, rúmlega 49 prósent á móti 31 prósenti karla.
Þetta er ansi mikill munur og sýnir glöggt að konur eru að mennta sig mun meira en karlar og munurinn er hreinlega sláandi.
Varðandi íbúa höfuðborgarsvæðisins, þá höfðu 45 prósent þeirra lokið háskólaprófi í fyrra. 30 prósent fólks utan höfuðborgarsvæðisins gerði það sama.
Komment