
Í gær var Jón Þórir Ingimundarson dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðsbundin, fyrir að áreita átta stúlkur, sem allar voru 13 ára eða yngri, kynferðislega á samfélagsmiðlinum Snapchat.
Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa verið að grínast og að valdefla stelpurnar. Skilaboðin sendi maðurinn á árunum 2021 og 2022.
Dæmi um skilaboð
a. „Hefur þú aldrei blotnað við að hugsa um okkur tvö? Mátt alveg segja, þarft ekkert að skammast þín fyrir það“
b. „Ok en þú veist samt að það er alveg eðlilegt að karlmenn fái standpínu right?“
c. „Það bara gerðist þegar ég hugsaði um okkur tvö😊“
d. „Verður þú aldrei gröð“
e. „Hefurðu aldrei fengið fullnægingu?“
f. „Þú mátt alveg segja mér, algjör trúnaður“
g. „D [ … ] ég vil allavega vera vinur þinn, þarft ekki að vera dry við mig“
h. „Hefurðu prófað að leika þér sjálf?“
Jón hefur ekki gerst brotlegur áður en langur tími leið frá því að rannsókn málsins lauk og þar til það var ákært í málinu. Hjálpar það manninum þegar kemur að dóminum. Var ákveðið að 12 af 15 mánuðum yrðu skilorðsbundnir og falli það niður haldi hann skilorði í þrjú ár.
Athygli vekur að búið er að fjarlægja nafn Jóns úr dómnum en upphaflega var það hluti af honum þegar dómurinn var birtur á heimasíðu Héraðsdóms Reykjaness.
Komment