1
Innlent

Hreinsanir í Valhöll

2
Innlent

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

3
Heimur

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

4
Heimur

Risa eiturlyfjasmygl til Kanaríeyja stöðvað

5
Fólk

Verðlaunakokkur selur þokkafulla íbúð í Seljahverfi

6
Pólitík

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

7
Heimur

Sex ára stelpa handtekin vegna morðs á hershöfðingja

8
Heimur

Norskur kvensjúkdómalæknir dæmdur fyrir tugi nauðgana

9
Pólitík

Kristrún gerir ekki það sama og Bjarni Ben

10
Pólitík

Aukið sorgarleyfi samþykkt á Alþingi

Til baka

Nýr sóknarprestur tekur til starfa á Vopnafirði

Vann sem prestur í Svíþjóð í meira en áratug.

Sr. María Guðrún Ljungberg
Sr. María Guðrún LjungbergMaría Guðrún hefur víðtæka reynslu sem prestur.
Mynd: Þjóðkirkjan

Sr. María Guðrún Ljungberg hefur verið skipuð sóknarprestur í Hofsprestakalli á Vopnafirði og tekur hún til starfa 1. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram í umfjöllun Austurfréttar.

María Guðrún er fædd árið 1985 og lauk BA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 2009. Hún hlaut meistaragráðu í faginu árið 2011, með áherslu á sálgæslu. Meistararitgerð hennar bar titilinn „Ég og Guð, O boy!“, og fjallaði um þróun guðsmyndar og trúarvitundar meðal kvenkyns guðfræðinema.

Hún var vígð til prests árið 2013 og hóf störf í Patreksfjarðarprestakalli, sem þjónar Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. Að þeim tíma loknum hélt hún til Svíþjóðar í framhaldsnám og tók þar síðar prestsvígslu til starfa innan sænsku kirkjunnar.

María Guðrún hefur starfað sem prestur í Svíþjóð í yfir áratug og býr að víðtækri starfsreynslu úr safnaðarstarfi bæði þar og hér á landi. Sérhæfing hennar hefur verið á sviði sálgæslu, andlegrar leiðslu og þjónustu við börn og unglinga.

Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni kemur fram að hún komi til starfa með öfluga þekkingu og reynslu í farteskinu.

Laus staða er enn í Austfjarðaprestakalli og hefur hún staðið ómönnuð í tæpt ár. Gert er ráð fyrir að staðan verði auglýst að nýju síðar á vormánuðum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Madleen
Heimur

Greta Thunberg og félagar nálgast Gaza-ströndina

Trump og Musk
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

Kristinn Hrafnsson
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

breidagerdisskoli3
Innlent

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

Christian Brueckner
Heimur

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

Benjamin Netanyahu
Heimur

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Pólitík

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

slökkvilið
Innlent

Sýra lak úr 1000 lítra bamba

Loka auglýsingu