
Sálfræðingurinn og einkaþjálfarinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, gagnrýnir harðlega það sem hún telur vera vaxandi áherslu á grannan líkama og óheilbrigðar fyrirmyndir á samfélagsmiðlum. Í nýrri Facebook-færslu setur hún fram kaldhæðna sviðsmynd þar sem „árið 2003“ hringir í „árið 2026“ til að endurvekja gömul tískufyrirbæri og hugsunarhátt.
Í færslunni líkir hún þróuninni meðal annars við fyrri tíðar megrunarmenningu og stríðsrekstur: „Við erum nú þegar að endurvinna áras í Íran eins og þið voruð með í Írak. Hvað er annað í boði hjá ykkur?“
Hún segir ákveðna afturför eiga sér stað í líkamsímynd og heilsuhugsun, þar sem þrýstingur sé að aukast á konur að verða sífellt grennri: „Við erum aðallega að reyna að selja fólki aftur mjónulúkkið. Það hefur orðið verulega undir hjá kellingum sem eru núna að byggja og borða. Það þarf að stoppa hið snarasta. Við viljum endilega ýta aftur inn að smætta og minnka.“
Í færslunni lýsir hún ýktri og gagnrýninni mynd af því hvernig slíkt útlit er kynnt: „Helst þannig að allur vöðvamassi sé horfinn. Sokkin viðbein. Ekki fituarða í andlitum. Sýnileg rifbein.“
Hún bendir jafnframt á að þessi þróun geti grafið undan jákvæðri heilsumenningu sem hafi verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum: „Við viljum að konur sem eru að lyfta, með grjótharða vöðva, borða prótín og kolvetni, fóðra æfingar og hvílast vel efist stórkostlega um allar sínar venjur,“ skrifar Ragga kaldhæðin.
Ragga gagnrýnir einnig hvernig samfélagsmiðlar geti ýtt undir skekkta líkamsímynd og óraunhæfar kröfur, sérstaklega meðal ungs fólks: „Eðal markaðssetning hjá ykkur 2026 væri að nýta nýja tækni. Samfélagsmiðla og netið til að ýta frægum mjög mjóum líkömum að unglingsstúlkum til að brengla líkamsímynd þeirra og skapa lífslanga baráttu við mataræði og hreyfingu.“
Hún segir jafnframt að neikvæðar afleiðingar hraðrar megrunar séu oft hunsaðar í umræðunni og nefnir dæmi á borð við „beinþynningu, átraskanir, lægri grunnbrennslu, hárlos, blæðingastopp, hormónabrengl, svefntruflanir, depurð [og] kvíða“.

Komment