
Reykvíkingur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti.
Hann er sagður hafa um nokkurt skeið fram til 31. júlí 2025 tekið við samtals 9.950 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum en honum gat ekki dulist að um væri að ræða ávinning af sölu og dreifingu fíkniefna og eftir atvikum öðrum refsiverðum brotum samkvæmt ákærunni. Reykvíkingurinn var með reiðuféð falið í skóm í póstsendingu sem hann póstlagði til Albaníu hjá Póstinum, Stórhöfða 32 þann 31. júlí 2025.
Með háttsemi sinni móttók hann ávinning af refsiverðum brotum, geymdi ávinninginn og leyndi ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli og staðsetningu hans.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka málið fyrir þann 22. apríl.

Komment