
Saksóknarar í Svíþjóð kröfðust fyrr í dag þess að sjálfskipaða „rusldrottningin“ Svía og fjórir aðrir yrðu dæmdir í sex ára fangelsi fyrir ólöglega förgun á eitruðum úrgangi í stærsta umhverfisbrotamáli landsins.
Úrgangsfyrirtækið Think Pink er ákært fyrir að hafa urðað eða skilið eftir um 200.000 tonn af úrgangi frá Stokkhólmssvæðinu á 21 stað á árunum 2015 til 2020, án þess að hafa í hyggju að vinna úr honum á löglegan hátt.
Bella Nilsson, fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins og fyrrverandi nektardansari, sem kallaði sig „rusldrottningu“ er ákærð fyrir „alvarlegt umhverfisbrot“.
Tveir aðrir sem einnig gegndu stöðu forstjóra á tímabili Thomas Nilsson og Leif-Ivan Karlsson eru sömuleiðis ákærðir fyrir sömu brot og gætu fengið sömu refsingu. Sömuleiðis eru „úrgangsmiðlarinn“ Robert Silversten og Tobias Gustafsson, sem eru sakaðir um að hafa skipulagt flutning úrgangsins, ákærðir fyrir sömu brot.
Öll fimm neita sök í málinu
„Við gerðum allt rétt. Við unnum samkvæmt lögum,“ sagði Bella Nilsson við héraðsdóm. Verjandi hennar, Thomas Olsson, hafnaði því að fyrirtækið hefði notað fölsuð skjöl til að blekkja yfirvöld og sagði möguleg mistök hafa verið „óviljandi“. Nilsson, sem hefur nú breytt nafni sínu í Fariba Vancor, heldur því fram að hún sé fórnarlamb samsæris samkeppnisaðila.
Saksóknarar kröfðust einnig þriggja ára refsingar yfir umhverfisráðgjafa sem er sakaður um að hafa hjálpað fyrirtækinu að standast eftirlit, auk átta til átján mánaða refsinga yfir fimm landeigendum.
Think Pink var ráðið af sveitarfélögum, byggingarfyrirtækjum, húsfélögum og einstaklingum til að farga byggingarefni, rafeindatækjum, málmum, plasti, viði, dekkjum og leikföngum. Fyrirtækið skildi hins vegar úrganginn eftir óflokkaðan og yfirgefinn, eins og fram kom í réttarhöldunum.
Dómur verður kveðinn upp 17. júní.
Komment