Í morgun um klukkan 11 var björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal boðuð út vegna rútu sem hafði lent út af veginum um Reynisfjall og hafnað ofan í skurði.
Enginn um borð í rútunni slasaðist en rútan var ekki í ökuhæfu ástandi og flytja þurfti fólkið niður af Reynisfjalli og í skjól í Vík.
Þær aðgerðir gengu vel og voru allir fluttir í húsnæði Icewear í Vík þar sem þau fengu skjól.
Rútan var skilin eftir.
Þetta var annað útkallið hjá Víkverja á innan við sólarhring.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment