1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Rússneskur hershöfðingi montaði sig af pyntingum og aftökum úkraínskra stríðsfanga

Sendi konu sinni mynd af afskornum eyrum

hershöfðinginn
Roman DemurchievRoman montaði sig af pyntingum við eiginkonuna

Ofbeldi gegn úkraínskum stríðsföngum, barsmíðar, pyntingar og aftökur án dóms og laga, hefur verið skjalfest víða á meðan á allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu stendur. Það sem hefur hins vegar reynst erfiðara að sanna er boðleiðin að baki slíkum verkum, það er hverjir fá upplýsingar og hverjir gefa skipanir. Nú hafa blaðamenn fengið sjaldgæfa innsýn í rússnesk stríðsglæpi í Úkraínu í gegnum safn einkaskilaboða, ljósmynda og myndbanda sem fengin voru frá heimildarmanni innan úkraínska hersins.

Í nýrri rannsókn skoðuðu blaðamenn rannsóknarverkefnanna Skhemy og Sistema hjá Radio Free Europe/Radio Liberty einkasamskipti rússneska hershöfðingjans Roman Demurchiev. Þar kom í ljós að hann hafði státað sig af pyntingum, aftökum og vanhelgun á líkum úkraínskra hermanna, þar á meðal stríðsfanga, í samtölum við nána aðila og samherja sína.

Skjalasafnið spannar árin 2022 til 2024 og varpar ljósi ekki aðeins á háttsemi Demurchievs sjálfs heldur einnig samábyrgð yfirmanna hans, allt upp til hershöfðingja sem stýrði samsettum herafla upp á tugþúsundir manna. Fréttavefurinn Meduza dregur saman niðurstöður rannsóknarinnar.

Roman Demurchiev, 49 ára, nýtur góðs orðspors innan rússneska hersins. Hann hefur setið fundi með æðstu yfirmönnum og hlotið fjölda heiðursorða. Árið 2023 var hann gerður að hershöfðingja af Vladimir Putin. Demurchiev gegndi stöðu aðstoðaryfirmanns 20. samsetta hers Rússlands að minnsta kosti fram í desember 2024, en opinberar heimildir gefa ekki upp núverandi stöðu hans.

Skjalasafnið inniheldur ekki aðeins skilaboð heldur einnig myndbönd og ljósmyndir sem sýna pyntingar og dráp á úkraínskum hermönnum. Í samskiptum sínum við aðra liðsforingja og eiginkonu sína minntist hershöfðinginn ítrekað á afskorin eyru úkraínskra stríðsfanga. Til sönnunar sendi hann grófar ljósmyndir. Í einu samtali við eiginkonu sína sendi hann mynd af nokkrum eyrum og sagðist ætla að „þræða þau á band og gefa í gjöf“.

„Eins og svínaeyru með bjór,“ svaraði eiginkona hans.

Demurchiev ræddi oft meðferð stríðsfanga við mann sem sagðist vera yfirmaður í gagnnjósnum hersins og kallaði sig „Roman“. Í október 2023 spurði Demurchiev hann hvað ætti að gera við úkraínskan fanga, hvort ætti að drepa hann eða senda hann í pyntingar. Tengiliðurinn tók fangann að lokum. Sá úkraínski hermaður sneri síðar heim í fangaskiptum og staðfesti að hann hefði verið alvarlega barinn og pyntaður með raflosti.

Skilaboðin sem bárust RFE/RL benda einnig til þess að þessi „Roman“ hafi sent fanga og handtekna til hershöfðingjans með beiðni um að þeir yrðu drepnir.

Í desember 2024 ræddi Demurchiev við undirmenn sína um myndband sem sýndi rússneska fanga, fyrrverandi sakamenn sem höfðu verið teknir í herþjónustu, handtaka þrjá úkraínska hermenn og berja þá til bana með skóflum. Samskiptin benda til þess að Demurchiev hafi greint yfirmanni sínum, hershöfðingjanum Oleg Mityaev, yfirmanni 20. hersins, frá atvikinu, en sá hafi fyrirskipað að fangarnir yrðu heiðraðir.

Ákvörðun Mityaevs um að heiðra fyrrverandi sakamenn var ekki undantekning. Rannsókn RFE/RL leiddi í ljós að misþyrmingar og aftökur úkraínskra stríðsfanga eru algengar innan rússneska hersins og séu virkt hvattar áfram af herforingjum, jafnvel á æðstu stigum yfirstjórnarinnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu