1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Nora Haukland lýsir meintu ofbeldi í sambandi við Marius Borg Høiby

„Augun urðu svört“

Marius Borg Høiby
Marius Borg HøibyÞungar sakir eru bornar á prinsessusoninn
Mynd: Bernard Rubsamen. / dana press / picturedesk.com

Fyrrverandi kærasta Mariusar Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, bar vitni fyrir dómi í dag, gegn Mariusi, sem sakaður er um 38 mismunandi brot.

Áhrifavaldurinn Nora Haukland og Marius Borg Høiby, sem oft er nefndur „aukaprinsinn“ (n. bonusprinsen), voru í sambandi í um eitt og hálft ár. Nú er Høiby grunaður um að hafa beitt hana bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi nær allan þann tíma sem sambandið stóð yfir.

Haukland, sem er 28 ára, steig í vitnastúkuna í Héraðsdómi Oslóar, þar sem hún lýsti sambandi þeirra og þeirri þróun sem það tók. Hún sagði að hún hefði smám saman byggt upp mikinn ótta við hann og reiði hans.

Parið kynntist árið 2022 og hóf fljótlega samband. Haukland lýsti því hvernig hún varð fljótt ástfangin og heilluð af honum, en sagði jafnframt að fljótlega hafi farið að bera á óstöðugleika. Að hennar sögn sýndi hann tvær gjörólíkar hliðar: annars vegar glaðvær og hlýlegan mann sem hún treysti og taldi sinn besta vin, hins vegar mann sem hún gat ekki átt samskipti við þegar hann varð reiður.

Hún lýsti því að þegar skap hans breyttist hafi „augun orðið svört“ og að hún hafi verið skelfingu lostin þegar hún sá þessa hlið koma fram, enda vissi hún aldrei hvað myndi gerast næst.

Fljótlega hafi hann orðið afbrýðissamur og stjórnsamur, viljað ráða klæðaburði hennar, samskiptum og athöfnum. Hann hafi einnig haldið sambandi við konur sem hann hafði áður verið með og komið með leiðinlegar athugasemdir við vini hennar. Þegar hún gagnrýni hann fyrir það hafi hann brugðist reiður við.

Samkvæmt framburði Haukland hófst líkamlegt ofbeldi skömmu síðar. Hún sagði að hún hefði oft gengið á eggjaskurnum í samskiptum við hann, hann hafi öskrað á hana og ítrekað meitt hana líkamlega. Hún lýsti meðal annars atviki þar sem hún læsti sig inni í herbergi til að komast undan honum, en hann barði þá á hurðina og réðst síðar að henni inni í herberginu.

Hún sagði einnig að ofbeldið hefði átt sér stað ítrekað og að hún hefði upplifað bæði gaslýsingu og svokallað „love bombing“, þar sem hann ýmist beitti hana ofbeldi eða baðst afsökunar og lofaði bót og betrun. Þetta hafi orðið til þess að hún fór að efast um eigið mat á aðstæðum á sama tíma og óttinn jókst.

Við yfirheyrslur spurði saksóknarinn Sturla Henriksbø hvers vegna hún hefði ekki slitið sambandinu fyrr. Haukland svaraði að hún hefði lengi vonað að hlutirnir myndu batna, enda hefði hið góða í sambandinu verið sterkt og tilfinningarnar djúpar.

Parið sleit sambandinu árið 2023 eftir um eitt og hálft ár saman. Marius Borg Høiby er nú grunaður um alls 38 mismunandi brot. Hann hefur neitað öllum ásökunum um líkamlegt og andlegt ofbeldi.

Réttarhöldin halda áfram næstu þrjár vikur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

„Svona var aðkoman fyrir utan bílskúrinn minn við Flyðrugranda í dag“
Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu