
Leikkonan Tori Spelling og börn hennar eru að jafna sig eftir nokkuð alvarlegt bílslys sem átti sér stað 2. apríl.
Spelling, sem er þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Beverly Hills, 90210, var flutt á sjúkrahús ásamt fjórum af fimm börnum sínum og þremur öðrum eftir slysið. Hún á börnin Liam, Stella, Hattie, Finn og Beau með fyrrverandi eiginmanni sínum, Dean McDermott.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Riverside-sýslu í Kaliforníu var tilkynnt um slysið í Temecula um klukkan 17:45. Þegar lögregla kom á vettvang fundust tvö skemmd ökutæki.
Talið er að Spelling, 52 ára, hafi verið að keyra með fjögur barna sinna og þrjá vini þeirra þegar annar ökumaður ók yfir á rauðu ljósi og lenti á bifreiðinni.
Allir sem voru í bílnum voru skoðaðir á vettvangi og síðar fluttir á sjúkrahús með þremur sjúkrabílum. Þar fengu þeir meðferð vegna meiðsla á borð við heilahristing, mar, skurði og skrámur. Enginn hefur verið handtekinn og slysið er enn til rannsóknar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Spelling lendir í ógnvekjandi bílslysi með börnum sínum. Árið 2011 lenti hún í árekstri þegar hún var elt af ljósmyndurum á leið með börn sín í skólann.
Þá sagði hún að hún hefði reynt að komast undan ljósmyndara þegar slysið varð og að hann hefði haldið áfram að reyna að taka myndir eftir áreksturinn. Hún gagnrýndi þá harðlega og spurði hvað þyrfti til að slíkt hætti.
Þrátt fyrir að enginn slasaðist alvarlega í því slysi leitaði hún læknisaðstoðar í kjölfarið, þar sem hún var þá ólétt og vildi ganga úr skugga um að allt væri í lagi.

Komment