
Lögreglumenn s á Tenerife hafa handtekið konu sem grunuð er um tilraun til þjófnaðar úr bakpoka ferðamanns. Handtakan átti sér stað eftir að lögregla bar kennsl á konuna í myndbandi sem dreift var á samfélagsmiðlum og sýndi hana reyna að stela úr bakpoka ferðamanns á suðurhluta eyjunnar.
Handtakan er liður í áframhaldandi átaki sem miðar að því að draga úr afbrotum og auka eftirlit á fjölförnum almenningssvæðum til að tryggja öryggi íbúa og ferðamanna.
Við rannsókn málsins kom í ljós að fyrir lá handtökuskipun á hendur konunni vegna sambærilegra brota. Í kjölfar frekari rannsóknar tókst lögreglu að rekja ferðir hennar að gistiheimili, þar sem hún var handtekin.
Við handtökuna kom einnig í ljós að gistiheimilið hafði ekki uppfyllt lagaskyldu sína um að skrá upplýsingar um gesti í kerfi ríkislögreglunnar.
Hin handtekna hefur verið færð fyrir dómstóla þar sem málið verður tekið til frekari meðferðar.

Komment