
Lögreglan hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt þar sem nokkur erill skapaðist vegna samkvæmishávaða, ölvunartengdra mála og stympinga. Nokkrar tilkynningar bárust um hávaða frá samkvæmum og ölvunarlæti og sinnti lögregla þeim útköllum.
Tilkynnt var um innbrot í geymslur þar sem nokkru magni verkfæra var stolið. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Þá var lögregla einnig kölluð til í fjölbýlishús þar sem óskað var eftir aðstoð við að vísa óvelkomnum manni úr sameign hússins. Maðurinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að.
Lögregla var kölluð á skemmtistað í miðborginni vegna manns sem reyndist vera með eggvopn innanklæða. Sá var kærður fyrir brot á vopnalögum. Annar aðili var handtekinn síðar vegna brota á áfengis- og vopnalögum og er mál hans einnig til rannsóknar.
Nokkur umferðarlagabrot komu einnig til kasta lögreglu. Einn ökumaður var kærður fyrir að vera án skráningarmerkja og á von á sekt vegna þess. Þá var ökumaður kærður fyrir akstur sviptur ökurétti og annar fyrir hraðakstur, en sá mældist á 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Þá var enn fremur einn ökumaður kærður fyrir akstur án gildra ökuréttinda.
Tilkynnt var um slagsmál milli tveggja aðila við verslunarkjarna. Báðir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Þá barst einnig tilkynning um þjófnað á farsíma sem nú er til rannsóknar, auk þess sem tilkynnt var um líkamsárás þar sem aðilar voru farnir af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn.

Komment