Miðvikudagur 5. mars, 2025
2.8 C
Reykjavik

Ágúst með hugvekju um einveru miðaldra fólks: „Einmanaleiki hefur verið skilgreindur sem faraldur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifað hugvekju um einveru á Facebook í morgun.

Þingmaðurinn fyrrverandi, Ágúst Ólafur Ágústsson velti fyrir sér á Facebook, einveru fólks sem komið er af léttasta skeiðinu og börnin flogin úr hreiðrinu. Með færslunni birti hann mynd sem sýnir þróunina í ævi fólks. Færslan byrjaði á eftirfarandi hátt:

„Í gær hitti ég góða og gamla vini. Eins og allir miðaldra feður ræddum við m.a. um vináttu og tímann sem einhvern veginn flýgur áfram. Hugur minn leiddi mig að þessari mynd sem sýnir hversu mikið einveran eykst eftir 40-45 ára aldur.

Tíminn með börnum sem fullorðnast, hrynur en stundum er sagt að 90% af tímanum sem þú nærð með börnunum þínum eru fyrstu 18 árin þeirra.

Tími með maka og vinnufélögum er svipað mikill fram til 55 ára (og skiptir því máli að vanda valið í þeim efnum.“

Í seinni hluta hugvekjunnar, sem vakið hefur athygli lesenda, segir Ágúst að einmanaleiki hafi verið skilgreindur sem faraldur og bendir á að góðir vinir séu gulls ígildi en það þurfi að rækta vináttuna og skipuleggja hana, til að halda henni.

„En aftur að vináttu og einveru. Einmanaleiki hefur verið skilgreindur sem faraldur. Stundum finnst sumum erfitt að viðurkenna einmanaleika, sérstaklega í samfélagi þar sem “alltaf á að vera brjálað að gera” og samfélagsmiðlar eru uppfullir af utanlandsferðum og matarboðum. Raunveruleikinn er hins vegar sjaldnast þannig.
Því eru góðir vinir gulls ígildi. En tölfræðin segir að það þarf að rækta og jafnvel skipuleggja vináttuna því annars dettum við í einveruna.
Og svo er líka alltaf hægt að mæla með góðum hundum sem félagsskap.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -