Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku

Stuðningsfulltrúi oddviti Sósíal­ista í Reykja­vík

Segja list­ann end­ur­spegla mikla breidd

Framboðslisti Sósíalista í Reykjavík
Fram­boðs­listi Sós­í­alista í Reykja­vík Frá vinstri að aftan: Rósa, Júnía, Birna, Geirdís, Silja og Sigrún Frá vinstri að framan: Jón, Halldór, Hannes (Jökul Sólberg vantar á mynd) Mynd: Aðsend

Sós­í­alista­fé­lag Reykja­víkur hefur kynnt tíu efstu sæti á fram­boðs­lista flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Listinn var lagður fram af upp­still­ing­ar­nefnd félags­ins og sam­þykktur á félags­fundi laug­ar­dag­inn 7. febr­úar.

Í til­kynn­ingu félags­ins segir að list­inn end­ur­spegli „mikla breidd“ innan flokks­ins, bæði hvað varðar aldur og bak­grunn fram­bjóð­enda, og að um sé að ræða venju­legt fólk sem brenni fyrir sam­fé­lags­legu rétt­læti. Flokk­ur­inn skil­greinir sig sem flokk í þágu almenn­ings og leggur áherslu á að fram­bjóð­endur komi úr ólíkum stéttum sam­fé­lags­ins.

Efst á lista er Silja Sóley Birg­is­dóttir, stuðn­ings­full­trúi, en í kjöl­farið fylgja meðal ann­ars athafna­kona, versl­un­ar­maður, öryrki, stjórn­mála­sagn­fræð­ingur, kenn­ari, nemi, kvik­mynda­gerð­ar­maður, for­rit­ari og sál­fræði­nemi. Samkvæmt til­kynn­ing­unni er mark­miðið að tryggja rödd fólks af ólíkum aldri og úr mis­mun­andi starfs­stéttum í borg­ar­stjórn.

  1. Silja Sóley Birg­is­dóttir - Stuðn­ings­full­trúi 25 ára 
  2. Sigrún E. Unn­steins­dóttir - Athafna­kona 69 ára
  3. Hannes Pét­urs­son - Versl­un­ar­maður 33 ára
  4. Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir - Öryrki 51 árs
  5. Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son - Stjórn­mála­sagn­fræð­ingur 34 ára
  6. Birna Gunn­laugs­dóttir - Kennari 64 ára
  7. Rósa Guðný Arn­ar­dóttir - Nemi 32 ára
  8. Halldór Ísak Ólafsson - Kvik­mynda­gerð­ar­maður 26 ára
  9. Jökull Sólberg Auð­uns­son - For­rit­ari 40 ára
  10. Júnía Líf Mar­íu­erla Sig­ur­jóns­dóttir - Sál­fræði­nemi 33 ára

Sós­í­alistar segja borg­ar­búa búa við margra ára lífs­kjara­krísu þar sem verð á nauð­synjum hafi hækkað án þess að laun fylgi eftir. Jafn­framt hafi þjón­usta borg­ar­innar hnignað vegna auk­innar útvist­unar inn­viða. Flokk­urin seg­ist ætla að snúa þess­ari þróun við og telur bæði nauð­syn­legt og raun­hæft að gera það.

Í mál­efna­yf­ir­lýs­ingu sinni leggja Sós­í­alistar ríka áherslu á hús­næð­is­mál og boða stofnun Bygg­inga­fé­lags Reykja­víkur sem byggi beint, ódýrt og óhagn­að­ar­drifið hús­næði. Slagorð flokks­ins í þeim mála­flokki er að byggja fyrir fólk en ekki fjár­festa.

Í sam­göngu­málum gagn­rýnir flokk­ur­inn það sem hann kallar vit­leysu og aukna inn­viða­skuld, auk gjald­töku einka­fyr­ir­tækja fyrir notkun á bíla­stæðum borg­ar­innar. Þá er varað við hug­myndum um einka­væð­ingu Strætó og boðað að Sós­í­alistar vilji end­ur­heimta stjórn á innviðum borg­ar­innar.

Í mennta­málum segja Sós­í­alistar nauð­syn­legt að ráð­ast í raun­veru­legar aðgerðir, hlusta á starfs­fólk í leik- og grunn­skólum og bæta starfs­að­stæður til að sporna við starfs­manna­veltu. Mark­miðið sé að skapa upp­byggi­legt og hvetj­andi skólaum­hverfi þar sem bæði börn og starfs­fólk blóm­stri.

Flokk­ur­inn gagn­rýnir jafn­framt útvistun á vegum borg­ar­innar og segir hana leiða til verri þjón­ustu, lak­ari kjara starfs­fólks og hærri kostn­aðar til lengri tíma. Lögð er áhersla á að almannafé nýt­ist almenn­ingi og að fjár­magnið vinni fyrir fólkið.

Að lokum segir í til­kynn­ing­unni að sækja þurfi fjár­magn til þeirra sem eigi það, meðal ann­ars með því að skatt­leggja fjár­magnstekjur til jafns við launa­tekjur þannig að þær skili sér til sveit­ar­fé­laga. Með því telja Sós­í­alistar hægt að fjár­magna grunn­þjón­ustu og skapa sann­gjarn­ara sam­fé­lag.

Sós­í­alista­fé­lag Reykja­víkur segir ljóst að næg verk­efni séu fram undan og að flokk­ur­inn ætli sér að snúa við þeirri veg­ferð sem verið hafi síð­ustu ár. Mark­miðið sé að leysa lífs­kjara­krís­una, byggja öfl­uga Reykja­vík og skapa borg sem virki fyrir alla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“