Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Erika ýtti við Cörlu þegar úrslitin voru ljós og hróp­aði „aldrei!“

Carla og Erika
Carla og Erika Erika var afar ósátt við úrslitin Mynd: Skjáskot

Carla Jade hélt Misfits-meist­aratitli sínum eftir nauman sigur á íslensku hnefa­leika­kon­unni Eriku Nótt Ein­ars­dóttur í Lundúnum í kvöld. Hin 19 ára Erika byrj­aði betur og vann fyrstu tvær umferð­irnar að mati lýsenda bar­dag­ans, en Carla sótti í sig veðrið og hafði betur í síð­ustu þremur. Erika var afar ósátt við nið­ur­stöð­una og ýtti við Cörlu þegar hún fagn­aði sigrinum.

Erika Nótt Ein­ars­dóttir þurfti að sætta sig við naumt tap í frumraun sinni hjá Misfits Boxing þegar hún mætti ríkj­andi létt­vigt­ar­meist­ar­anum Carla Jade í Copper Box Arena í Lundúnum.

Bar­dag­inn var jafn og spenn­andi. Erika byrj­aði af krafti og hafði betur í fyrstu tveimur umferð­unum, en Carla náði að snúa tafl­inu við og var sterk­ari í síð­ustu þremur. Það dugði henni til að tryggja sér nauman sigur og halda meist­aratitl­inum.

Ljóst var að Erika var ekki sátt við nið­ur­stöð­una. Þegar Carla fagn­aði sigrinum og titl­inum hróp­aði Erika „aldrei!“ og ýtti við henni. Fyrir bar­dag­ann höfðu þær báðar látið stór orð falla en Carla kastaði meðal ann­ars dós í átt að Eriku á blaða­manna­fundi í fyrra­dag.

Viðbrögð Eriku settu enn meiri drama­tík í lok bar­dag­ans, sem hafði verið jafn og tví­sýnn allt til loka.

Lengi beðið eftir tækifærinu

Erika hefur lengi stefnt að því að kom­ast í atvinnu­bar­daga og tryggði sér sæti hjá Misfits Boxing eftir að hafa vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum og í hlað­vörpum.

Hún varð Norð­ur­landa­meist­ari í hnefa­leikum árið 2024, fyrst Íslend­inga, og til­kynnti skömmu síðar að hún hygð­ist halda út í atvinnu­mennsk­una eftir sigur á Icebox.

And­stæð­ingur hennar, Carla Jade, er 37 ára gömul og hefur verið við­loð­andi bar­daga­sen­una um ára­bil. Hún starf­aði áður sem hringstelpa og stofn­aði síðar fyr­ir­tækið Ring Girl Promotion. Hún er fjög­urra barna móðir og hafði fyrir bar­dag­ann varið Misfits-meist­ara­titil sinn í létt­vigt þrisvar sinnum.

Þrátt fyrir tapið sýndi Erika að hún getur veitt reynslu­miklum and­stæð­ingum harða keppni. Naumur sigur Cörlu og við­brögð Eriku eftir að úrslitin lágu fyrir munu án efa vekja áfram umræðu meðal fylgj­enda beggja kepp­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Sport

Sport

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Corinthians hyggst kæra árásir á tvo leikmenn sína. Ferroviária boðar agaviðurlög og gagnrýnir jafnframt þjálfara mótherjanna.
Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Sport

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Sport

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið

Sport

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Sport

Fram­herji CD Tenerife lést eftir árekstur við mark­mann