Þriðjudagur 15. október, 2024
7.4 C
Reykjavik

Foreldrar fá vöggugjafir í Fjarðabyggð: „Okkur finnst dásamlegt að geta létt undir með fjölskyldum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sveitarfélagið Fjarðabyggð og Kjörbúðin hafa gert með sér samkomulag um að gefa nýbökuðum foreldrum í sveitarfélaginu vöggugjöf.

Samkvæmt Austurfrétt er vöggugjöfin pakki með nauðsynjavörum fyrir fyrstu vikurnar í lífi nýfæddra barna og foreldra þeirra en hægt er að nálgast pakkann í Kjörbúðum í sveitarfélaginu.

„Vöggugjöfin er okkar framlag til þess að bjóða nýjustu íbúa Fjarðabyggðar velkomna í heiminn. Við vitum að það er að mörgu að huga fyrstu vikurnar í lífi barns og okkur finnst auðvitað dásamlegt að geta létt undir með fjölskyldum með þessum hætti.

Við höfum í gegnum tíðina átt í góðu samstarfi við Fjarðabyggð, og það er frábært að taka þetta stóra skref saman,“ segir Bergrún Ósk Ólafsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum í tilkynningu.

Eftirfarandi er síðan haft eftir Haraldi Líndal Haraldssyni, upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar:

„Fjarðabyggð er stolt af því að fá að taka þátt í þessu verkefni með Samkaupum og vera þar með fyrsta sveitarfélagið til þess. Fjarðabyggð er barnvænt sveitarfélag þar sem börn komast í leikskóla eftir fyrsta aldursár og viljum við gera vel á fyrstu vikum barns með því að létta undir og stuðla að jákvæðri upplifun meðal nýbakaðra foreldra.”

- Auglýsing -

En hvað inniheldur vöggugjöfin? Þar má meðal annars finna bleyjur, bossakrem, snuð, barnolíu, blautþurrkur, lekahlífar, bómull og brjóstakrem. Er hugmyndin fengin erlendis frá þar sem sérstakir barnsburðarpakkar af svipuðum toga þekkjast og innihalda nauðsynjavörur fyrir allt frá nokkrum vikum og upp í fyrstu mánuðina eftir fæðingu barns. Þar sem slíkar gjafir eru í boði hafa þær slegið í gegn og í kjölfarið hlotið nokkra athygli á Íslandi.

Fram kemur í umfjöllun Austurfréttar að sveitarfélagið veiti upplýsingar um fjölgun á heimli sem síðan gefur Kjörbúðinni kleyft að bjóða stækkandi fjölskyldum möguleika á að þiggja gjöfina. Vilji fjölskylda þiggja vöggugjöfina getur hún nálgast upplýsingar á vefsvæði Kjörbúðarinnar og velja að fá gjöfina afhenta í verslun.

Alls er að finna Kjörbúð í þremur bæjum í Fjarðabyggð en það er á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og í Neskaupsstað. „Við viljum að íbúum í nágrenni Kjörbúða líði vel og upplifi öryggi með aðgengi að nauðsynjavörum. En við erum oftar en ekki eina verslunin í þeim bæjum þar sem við störfum og leggjum alltaf höfuðáherslu á að sinna því hlutverki vel, ekki einungis sem matvöruverslun, heldur einnig sem þátttakandi í samfélaginu. Því finnst okkur dýrmætt að fá að styðja við vaxandi fjölskyldur í okkar næsta nágrenni og vonum að gjöfin komi að góðum notum,” bætir Bergrún við.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -