1
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

2
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

3
Innlent

„Þá er Kringlan komin á feitan bannlista“

4
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

5
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

6
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

7
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

8
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

9
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

10
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Til baka

Jón Ásgeir aftur tengdur fjölmiðlarekstri

Með stórri fjárfestingu Skeljar í Sýn snúa Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir aftur í aðkomu að fjölmiðlunum.

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir JóhannessonEftir mikla lækkun á virði Sýnar í Kauphöllinni sneri Jón Ásgeir aftur í aðkomu að félaginu.
Mynd: Skel

Fjárfestingarfélagið Skel hefur keypt rúm 9% í Sýn og er sá hlutur metinn á rúmlega hálfan milljarð króna. Félagið á nú rúm 10% í Sýn. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeir Jóhannessonar, er einn af stærstu eigendum Skeljar í gegnum eignarhald á félaginu Streng ehf. sem á helming í Skel á móti lífeyrissjóðum og fleiri. Í dag er Jón Ásgeir stjórnarformaður Skeljar. Þetta markar ákveðna endurkomu þar sem þau hjónin seldu einmitt fjölmiðlahluta Sýnar á sínu tíma.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna seldi allan sinn hlut til Skeljar í vikunni. Sá hlutur var 5,67% en ekki liggur fyrir hver eða hverjir seldu hin rúmu 3% sem Skel keypti.

Gengi hlutabréfa í Sýn hafa eftir daginn í dag fallið um þriðjung á einu ári. Í dag hækkaði gengið hins vegar um 16%. Óvissa hefur verið í kringum áform félagsins síðustu misserin og hefur starfsmannaflótti frá Sýn verið áberandi í fjölmiðlum á árinu. Sýn sendi frá sér afkomuviðvörun 10. febrúar síðastliðinn vegna versnandi horfa.

Í vikunni var einnig tilkynnt að nýr stjórnarmaður kæmi inn í félagið á föstudag. Það er Heiðrún Lind Marteinsdóttir, sem einnig er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Sýn gefur meðal annars út Vísi.is, Stöð 2, Bylgjuna og FM-957.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni
Innlent

Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni

Ekkert bólað á nýju húsnæði
„Þá er Kringlan komin á feitan bannlista“
Innlent

„Þá er Kringlan komin á feitan bannlista“

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg
Innlent

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð
Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð

Metár og eigendaskipti hjá Þórsnesi í Stykkishólmi
Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista
Peningar

Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67
Peningar

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis
Peningar

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega
Peningar

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus

Loka auglýsingu