1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

3
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

4
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

5
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

6
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

7
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

8
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

9
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

10
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Til baka

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

„Kynlíf með sjálfum sér og kynlíf með maka uppfylla heldur ekki alltaf sömu þarfir.“

Starfsmaður Reykjavíkurborgar vinnur í beði fyrir framan Alþingishúsið
Alþingi Íslendinga
Mynd: Víkingur

Umræða um sjálfsfróun og notkun kynlífstækja innan sambanda hefur verið nokkur að undanförnu og meðal annars hefur þeirri spurningu verið velt upp hvort slík iðkun geti talist framhjáhald. Eva Pandora Baldursdóttir, sambands- og kynlífsráðgjafi og fyrrum þingmaður Pírata, fjallar um málið í aðsendri grein á Vísi.

Eva segir ekki óeðlilegt að notkun maka á kynlífstækjum geti vakið upp ýmsar tilfinningar. Fólk geti fundið fyrir óöryggi, höfnun eða áhyggjum af því að vera ekki nóg fyrir maka sinn.

„Ef annar aðilinn notar kynlífstæki getur hinn upplifað það sem vísbendingu um að eitthvað vanti í kynlífið þeirra, að makinn sé ekki fullnægður eða jafnvel að tækið sé á einhvern hátt að taka yfir hlutverk sem honum finnst að hann eigi sjálfur að gegna,“ skrifar Eva.

Hún segir mikilvægt að greina á milli þess að finna fyrir óöryggi og þess að hegðun maka feli raunverulega í sér ógn við sambandið. Tilfinningarnar geti verið raunverulegar þótt túlkunin sem fylgi þeim sé ekki endilega rétt.

Eva segir sjálfsfróun fyrir marga vera eðlilegan hluta eigin kynverundar. Hún geti verið leið til að slaka á, kynnast eigin líkama betur, fá útrás eða einfaldlega njóta kynferðislegrar vellíðunar. Það þurfi ekki að segja neitt neikvætt um kynferðislega löngun til maka.

„Kynlíf með sjálfum sér og kynlíf með maka uppfylla heldur ekki alltaf sömu þarfir. Annað þarf ekki að koma í stað hins,“ skrifar hún.

Þá hafnar Eva þeirri hugmynd að sjálfsfróun þurfi að draga úr kynferðislegum áhuga á maka. Hún segir kynferðislega virkni þvert á móti geta ýtt undir kynferðislegar hugsanir, löngun og áhuga á kynlífi almennt.

„Löngun er ekki eins og bensíntankur sem tæmist við notkun,“ skrifar Eva og líkir kynlöngun frekar við vöðva sem hitni og þjálfist við hreyfingu.

Hún hvetur fólk að lokum til þess að líta ekki á sjálfstæða kynverund maka síns sem samkeppni. Að vera í sambandi þýði ekki að fólk öðlist einkarétt á kynferðislegri ánægju hins aðilans.

„Kynverund maka okkar er ekki ógn sem þarf að halda í skefjum heldur heill heimur sem við getum fengið að kynnast,“ skrifar Eva og segir mögulega mun meira spennandi að fá boð inn í þann heim en að reyna að loka honum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu