1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

3
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

4
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

5
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

6
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

7
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

8
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

9
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

10
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Til baka

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

„Sumir tónleikar eru bara fyrir heilbrigða“

of Monsters and men
Gagnrýna aðgengi fyrir langveika á tónleikum Of Monsters and Men
Mynd: TOM COOPER / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Umræða hefur skapast innan Facebook-hópsins Beauty tips eftir að Þóra Marta Kristjánsdóttir vakti athygli á erfiðleikum langveikra og fatlaðra við að tryggja sér sæti á tónleikum Of Monsters and Men á Íslandi.

Þóra Marta sendi fyrirspurn á hljómsveitina Of Monsters and Men eftir að hún sá að miðar á komandi tónleika þeirra væru ónúmeraðir, sem jafnan þýðir að um standandi tónleika sé að ræða. Í tölvupóstinum útskýrði hún stöðu sína:

„Ég er sjúklingur sem vonaði að það væru sæti. Ég held í vonina og vona að ég heyri frá ykkur,“ skrifaði Þóra, sem hlakkaði mikið til að sækja viðburðinn en hikaði vegna óvissunnar.

Sæti í boði en engin trygging

Svar barst frá miðasölunni Tix.is og kom fram að boðið yrði upp á stúku á tónleikunum þar sem hægt væri að setjast, en skipulagið yrði með þeim hætti að ekki væri hægt að koma til móts við sérstakar þarfir einstakra gesta:

„Þau sæti eru í raun fyrstir koma fyrstir fá og því ekki hægt að taka frá sæti fyrir neinn,“ sagði í svari miðasölunnar.

Gagnrýnir útilokun á menningarviðburðum

Þetta fyrirkomulag mælist illa fyrir og sýnir, að mati Þóru Mörtu, ákveðið aðgengis- og skilningsleysi gagnvart þeim sem glíma við skerta hreyfigetu eða langvarandi veikindi. Þar sem fólk þarf að mæta snemma og treysta á heppni til að fá sæti, standa margir sjúklingar frammi fyrir því að geta hreinlega ekki átt þess kost að mæta.

Þóra Marta birti skjáskot af tölvupóstsamskiptunum inni á Beauty tips og dró bitra en raunsæja ályktun af svörunum:

„Staðreynd: sumir tónleikar eru bara fyrir heilbrigða.“

Málið varpar ljósi á ákall margra um að viðburðahaldarar á Íslandi tryggi skýrari ferla og frátekinn svæði fyrir fólk sem líkamlega getur ekki staðið heilu tónleikana.

UPPFÆRT: Of Monsters and Men hafa brugðist við frétt Mannlífs um málið

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu