Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Fimm góðar ástæður fyrir því að stunda meira kyn­líf

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Heimur

Var boðið kókaín í Hollywood aðeins 11 ára gömul

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Sakamál vegna meintra brota sem tengj­ast meðal ann­ars pen­inga­þvætti, hylm­ingu og ólög­legri atvinnu

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mynd: Víkingur

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur höfðað fjögur aðskilin saka­mál vegna meintra brota sem tengj­ast meðal ann­ars pen­inga­þvætti, hylm­ingu og ólög­legri atvinnu. Málin verða tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness 27. októ­ber næst­kom­andi.

Í einu mál­anna eru tveir menn ákærðir fyrir pen­inga­þvætti. Samkvæmt ákæru er þeim gefið að sök að hafa á tíma­bil­inu 28. febr­úar til 5. mars á þessu ári tekið við sam­tals 12.140 evrum og 2.700 Banda­ríkja­dölum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum.

Menn­irnir voru hand­teknir í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar 5. mars þegar þeir voru á leið til Helsinki í Finn­landi. Annar þeirra var sam­kvæmt ákæru með 6.000 evrur og 2.700 Banda­ríkja­dali falda í far­angri sínum en hinn með 6.140 evrur.

Ákæru­valdið telur að mönn­unum hafi ekki getað dulist að pen­ing­arnir væru ávinn­ingur af refsi­verðum brotum.

Í öðru máli er maður ákærður fyrir pen­inga­þvætti og brot gegn lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga. Honum er gefið að sök að hafa um nokk­urt skeið, allt til 4. júní 2025, unnið án atvinnu­rétt­inda á hót­eli og þá í nafni ann­ars manns.

Þá er hann ákærður fyrir að hafa tekið við 4.760 evrum í reiðufé sem ákæru­valdið telur ávinn­ing af refsi­verðum brotum. Pen­ing­arnir fund­ust í fórum hans þegar hann var hand­tek­inn í Leifs­stöð á leið til Mílanó á Ítalíu.

Þriðja málið varðar mann sem er ákærður fyrir pen­inga­þvætti vegna 5.175 evra í reiðufé. Samkvæmt ákæru tók hann við pen­ing­unum á tíma­bil­inu 9. til 18. maí síð­ast­lið­inn. Hann var hand­tek­inn í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar 18. maí þegar hann var á leið til Amster­dam í Hollandi.

Í fjórða mál­inu er maður ákærður fyrir pen­inga­þvætti og hylm­ingu. Honum er gefið að sök að hafa tekið við 1.810.000 krónum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum. Hann var hand­tek­inn í Leifs­stöð 5. febr­úar á leið til Gdansk í Póllandi.

Við hand­tök­una var mað­ur­inn jafn­framt með ýmsan varn­ing í ferða­tösku sinni, meðal ann­ars fatnað, leik­föng, mat­vöru, snyrti­vörur og fæðu­bót­ar­efni. Samkvæmt ákæru var um stolna muni að ræða og honum hafi ekki getað dulist að varn­ing­ur­inn væri þýfi.

Ákæru­valdið krefst refs­ingar og greiðslu sak­ar­kostn­aðar í mál­unum. Jafn­framt er kraf­ist upp­töku þeirra fjár­muna sem lög­regla lagði hald á og, í síð­ast­nefnda mál­inu, þeirra muna sem taldir eru vera þýfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Umboðsmaður telur að eftirlitsaðilar eigi almennt að fá tækifæri til að fjalla um kvartanir fyrst
Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli

Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

Slúður

Tak­mark­anir Sig­ur­jóns

Fólk

Lítil en ofur­krútt­leg íbúð með útsýni sem heillar til sölu

Innlent

Innlent

Hraða­kóngur mætti lög­regl­unni á fullri ferð

Ökumaður er grunaður um að hafa ekið á 130 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund
Innlent

Braust inn í sum­ar­bú­staði, stal bíl og braut rúðu á lög­reglu­bíl

Innlent

Mikill eldur geis­aði í versl­un­ar­hús­næði í Kópavogi í nótt

Innlent

Egill segir heim­ild­ar­mynd afhjúpa afmennskun ísra­elska hers­ins á Gaza

Innlent

Kven­fangi seg­ist hafa verið sviptur nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu

Innlent

Nýtt verk­efni á að tryggja börnum betri tal­meina­þjón­ustu