1
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

2
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

3
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

4
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

5
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

6
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

7
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

8
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

9
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

10
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Til baka

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum

„Við viljum mæta þörfum allra“

Of Monsters and Men
Tónleikarnir eiga að vera fyrir alla
Mynd: Of Monsters and Men

Umræða skapaðist innan Facebook-hópsins Beauty tips eftir að Þóra Marta Kristjánsdóttir vakti athygli á erfiðleikum sumra við að tryggja sér sæti á tónleikum Of Monsters and Men í Kaplakrika. Hljómsveitin og tónleikahaldarar harma þær upplýsingar sem miðasalan veitti og árétta að unnið sé að því að tryggja aðgengi fyrir öll.

Óvissan hófst þegar Þóra Marta sendi fyrirspurn vegna tónleikanna þar sem miðar voru ónúmeraðir, en hún vonaðist til þess að hægt yrði að tryggja sæti fyrir fólk með skerta hreyfigetu. Svarið sem hún fékk frá miðasölunni Tix.is olli henni miklum vonbrigðum. Þar kom fram að stúkusæti yrðu í boði á meginreglunni „fyrstir koma, fyrstir fá“ og ekki væri hægt að taka frá sæti fyrir neinn. Þóra Marta birti skjáskot af samskiptunum á samfélagsmiðlum og dró þá ályktun að sumir tónleikar væru einfaldlega „bara fyrir heilbrigða.“.

Svör miðasölunnar endurspegla ekki áherslur hljómsveitarinnar

Hljómsveitin Of Monsters and Men og tónleikahaldarar hafa nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir leiðrétta þann misskilning sem þessi svör sköpuðu. Þeir taka skýrt fram að svör miðasölunnar endurspegli ekki það fyrirkomulag sem unnið sé eftir.

„Frá upphafi höfum við lagt mikla áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir og að allir gestir geti notið þeirra við sem bestar aðstæður, enda mikil spenna hjá meðlimum sveitarinnar að enda alheimstónleikaferð á Íslandi,“ segir í svari hljómsveitarinnar.

Þá kemur fram að hljómsveitinni hafi ekki verið kunnugt um erindi Þóru Mörtu fyrr en málið kom upp á samfélagsmiðlum en hún fagni öllum erindum. Nú þegar sé byrjað að aðstoða fólk sem hefur lýst eftir sérstökum þörfum.

„Nú þegar hafa gestir sett sig í samband við okkur vegna sérstakra þarfa og höfum við unnið með hverjum og einum að því að tryggja viðeigandi aðstöðu bæði í gegnum Tix sem og í eigin persónu.“

Hvetja fólk til að hafa samband

Aðstandendur tónleikanna segja markmið sitt einfalt: að allir sem vilja njóta heimkomutónleikanna geti gert það á sem bestan máta. Þeir harma þá óþarfa óvissu sem stöðluð svör Tix.is kynnu að hafa valdið og hvetja alla þá sem þurfa sérstaka aðstoð eða aðstöðu að láta vita af sér.

„Við hvetjum alla gesti sem telja sig þurfa sérstaka aðstöðu eða aðstoð til að hafa samband við Tix eða tónleikahaldara. Við munum leggja okkur áfram fram um að finna lausn og tryggja að allir geti notið frábærra tónleika við sem bestar aðstæður og átt ógleymanlegt kvöld með okkur í Kaplakrika.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Viðurkenndi að hafa kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl
Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife
Heimur

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring
Heimur

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring

Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“
Myndband
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Loka auglýsingu