
Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Kviku banka og tekur við starfinu af Ármanni Þorvaldssyni 1. desember næstkomandi. Ármann hafði áður tilkynnt að hann hygðist láta af störfum.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Jón Birgir búi yfir umfangsmikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann hefur starfað stærstan hluta starfsævinnar í London og New York.
Jón Birgir starfaði hjá Neuberger Berman í London á árunum 2013 til 2025, þar sem hann var meðal eigenda og gegndi stjórnendastöðu. Áður starfaði hann hjá J.P. Morgan Asset Management frá árinu 1998, bæði í New York og London.
Jón Birgir er með grunnnám í stærðfræði frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í fjármálaverkfræði frá New York University. Hann hefur jafnframt setið í stjórn Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.
