Samfélagsmiðlastjarnan Linda Ben virðist hafa átt heldur betur góða daga í Kaupmannahöfn á dögunum þar sem hún naut lífsins með vinkonum sínum.
Linda birti skemmtilega myndasyrpu úr ferðinni á Instagram þar sem sjá má að stemningin hefur verið með besta móti. Góður matur, drykkir, hlátursköst og tónlist virðast hafa verið rauði þráðurinn í ferðinni og meðal annars skellti hópurinn sér á tónleika með Pussycat Dolls.
„Köben, Pussycat Dolls, endalaust góður matur, drykkir og hlátursköst með mínum uppáhalds,“ skrifar Linda við myndirnar og bætir síðan við í léttum dúr:
„Don’t cha wish your girls trips were hot like this?“
Linda hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum undanfarin ár og hefur einnig látið að sér kveða á öðrum vettvangi. Hún gaf meðal annars út bókina Kökur, sem naut mikilla vinsælda, og gerði sjónvarpsþátt sem sýndur var á Stöð 2 fyrir jólin 2024.
Linda er gift Ragnari Einarssyni, forstöðumanni færsluhirðingar Landsbankans, og eiga þau saman tvö börn.






Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir