Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

Landspítalinn í Fossvogi
Land­spít­al­inn í Fossvogi Mynd: Víkingur

Maður var í sumar úrskurðaður í gæslu­varðhald vegna gruns um tilraun til manndráps eða stór­fellda líkams­árás á kærustu sína. Konan leitaði á bráða­móttöku Land­spítala í Fossvogi með lífs­hættulega áverka.

Vísir greindi fyrst frá

Lögreglu var gert viðvart aðfara­nótt 17. júlí og var maðurinn hand­tekinn á bráða­móttökunni. Konan sagði lögreglu upphaf­lega að hún hefði sjálf veitt sér áverkana með því að slá sig í höfuðið með mjólkur­glasi. Læknis­fræðileg gögn þóttu hins vegar ekki samræmast frásögninni.

Í annarri skýrslu­töku breytti konan framburði sínum og sagði kærastann hafa ráðist á sig eftir rifrildi. Hann hefði verið með hamar og exi en hún vissi ekki hvort höggin hefðu verið veitt með höndum eða áhaldi.

Samkvæmt vottorði Land­spítala hlaut konan meðal annars opið höfuðkúpu­brot, kjálka­brot og brot á andlits­beinum. Við húsleit lögreglu fundust blóðug exi, kúbein og kaðall með ætluðu blóði.

Maðurinn neitaði að mestu að tjá sig við rannsókn málsins.

Í greinar­gerð lögreglu segir að um „stór­háskalega atlögu“ hafi verið að ræða og hending eina að ekki hafi farið verr. Maðurinn var úrskurðaður í gæslu­varðhald til 21. ágúst vegna alvarleika málsins og rannsóknar­hagsmuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning