1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast

Úkraínsk stjórnvöld segja Rússa hafa aukið umfang árása sinna að undanförnu

Kona með hund í Úkraínu
Kona horfir á ónýtt húsRússar sprengdu húsið í tætlur
Mynd: OLEKSANDR GIMANOV / AFP

Minnst sjö létust og tæplega 60 særðust í árásum Rússa víða um Úkraínu á laugardag. Úkraínsk stjórnvöld segja Rússa hafa aukið umfang árása sinna að undanförnu, meðal annars á borgaralega innviði, þegar enn einn vetur stríðsins nálgast.

Tveir létust í Zaporizhzhia-héraði í suðurhluta landsins og tveir til viðbótar í Zhytomyr-héraði. Þar varð matvöruverslun í borginni Zvyagel, um 230 kílómetra vestur af Kyiv, fyrir árás að sögn Vitaliy Bunechko, héraðsstjóra.

Tvær bensínstöðvar í Korosten í sama héraði urðu einnig fyrir árásum en þar varð ekkert manntjón.

Tveir létust þegar eldflaug hæfði verksmiðju stálframleiðandans ArcelorMittal í Kryvyi Rig í miðhluta Úkraínu. Fyrirtækið greindi frá skemmdum á framleiðslumannvirkjum og lagði áherslu á að um borgaralega starfsemi í námu- og málmiðnaði væri að ræða. Fyrirtækið fordæmdi árásina harðlega.

Þá lést einn í Kramatorsk, skammt frá víglínunni í austurhluta landsins. Úkraínska innanríkisráðuneytið sagði rússneskan dróna hafa hæft fólksbifreið á bílastæði við stórmarkað.

Mikill fjöldi særðist einnig í árásunum. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði 37 hafa særst þegar fjölbýlishús í Odesa varð fyrir árás. Björgunarsveitir leituðu jafnframt tveggja sem var saknað. Ellefu til viðbótar særðust í Chornomorsk í Odesa-héraði og fleiri í Kryvyi Rig og Kyiv-héraði.

Úkraínsk stjórnvöld segja Rússa einnig hafa aukið árásir á bensínstöðvar undanfarna daga, bæði í Kyiv og við helstu þjóðvegi. Sergiy Koretsky forsætisráðherra kallaði eftir auknum öryggisráðstöfunum vegna árásanna.

Zelensky hvatti bandamenn Úkraínu til að bregðast af meiri krafti við auknum árásum Rússa. Hann sagði viðbrögð öflugustu ríkja heims ekki vera í samræmi við þá stigmögnun sem ætti sér stað.

Á sama tíma hefur Úkraína aukið árásir sínar á skotmörk innan Rússlands. Zelensky sagði úkraínskar hersveitir hafa gert árásir á efnaverksmiðjur í Perm-héraði við Úralfjöll og Samara-héraði.

Árásirnar koma í kjölfar heimsókna bandarískra erindreka til bæði Moskvu og Kyiv í síðustu viku. Enginn marktækur árangur náðist í þeim viðræðum um möguleg lok stríðsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Hún lagði áherslu á að ekki væri um hjúkrunarþjónustu að ræða
Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Tjónið er talið nema meira en 2.000 Bandaríkjadölum
Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi
Heimur

Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Loka auglýsingu