Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

Málið er nú til rann­sóknar

Andreia Vieira Gaspar
Andreia Vieira Gaspar Mynd: Andreia Vieira Gaspar/Facebook

51 árs kona lést nokkrum dögum eftir að hafa gengist undir sex fegrunar­aðgerðir í einu á sjúkra­húsi í Goiânia í Brasilíu. Aðgerðirnar tóku samtals um átta klukku­stundir.

Konan hét Andreia Vieira Gaspar og hafði búið á Spáni fyrir aðgerðina. Samkvæmt brasilíska miðlinum G1 hafði hún safnað um 118 þúsund brasilískum real, jafnvirði tæplega 2.8 milljón króna, á tveimur árum til að greiða fyrir aðgerðirnar.

Meðal aðgerð­anna sem Andreia gekkst undir voru andlits­lyfting, augnloka­aðgerð, fitusog og fitu­fylling í andlit. Aðgerðirnar fóru fram 12. ágúst síðastliðinn.

Systir hennar, Djiane Vieira, hefur nú kallað eftir svörum vegna andlátsins. Hún heldur því fram að Andreia hafi ekki farið í sérstakt læknis­viðtal fyrir aðgerðina í Brasilíu og að rann­sóknir fyrir aðgerðina hafi verið framkvæmdar á Spáni.

Að sögn Djiane versnaði ástand systur hennar verulega þegar tunga hennar tók að bólgna. Hún segist ítrekað hafa reynt að ná sambandi við lækna­teymið og kallað eftir aðstoð en að viðbrögð hafi ekki verið fullnægjandi. Andreia lést að sögn í örmum systur sinnar eftir ítrekaðar endur­lífgunar­tilraunir.

Djiane hefur jafnframt haldið því fram að Ankar-sjúkra­húsið, þar sem aðgerðirnar fóru fram, hafi hvorki verið með gjörgæslu­deild né sjúkrabíl til taks.

Læknirinn Lessandro Martins hefur ekki viljað tjá sig um klínískar upplýsingar málsins og vísar til trúnaðar við sjúklinga. Í yfir­lýsingu sagðist hann treysta því að rannsókn málsins myndi leiða í ljós að rétt hefði verið staðið að meðferðinni.

Lögmaður Ankar-sjúkra­hússins hafnar því að Andreia hafi ekki fengið viðeigandi aðstoð og segir henni hafa verið veitta tafar­lausa bráða­þjónustu og gripið hafi verið til nauðsynlegra ráðstafana.

Málið er nú til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs